Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Allur fróðleikur / Blogg

Suðurströndin eða Gullni hringurinn: hvora leiðina áttu að velja?

Suðurströndin eða Gullni hringurinn: hvora leiðina áttu að velja?

Ferðalangar sem skipuleggja Íslandsferð standa gjarnan frammi fyrir sömu spurningunni: Á ég að keyra Gullna hringinn eða suðurströndina? Báðar leiðirnar eru rómaðar. Báðar eru í greiðri leið frá Reykjavík og Keflavíkurflugvelli. Og báðar sýna þá hráu fegurð sem einkennir landið.

En um leið og þú byrjar að leggja drög að ferðaáætlun um Suðurland verður munurinn ljós.

Valið milli Gullna hringsins og suðurstrandarinnar snýst ekki bara um vegalengdir. Það snýst um hraða, landslag og andrúmsloft. Önnur leiðin er þétt og söguleg. Hin teygir sig meðfram hafinu, mótuð af jöklum og svörtum sandströndum.

Ef þú ert að velja á milli þessara tveggja rómuðu leiða er hér það sem þú þarft að vita.

Gullni hringurinn og suðurströndin: stuttur samanburður

Atriði

Gullni hringurinn

Suðurströndin

Heildaraksturstími

Um 6–8 klst. (frá Ölfusi/Selfossi)

Um 10–12 klst. (fram og til baka, aðeins að Vík)

Landslag

Jarðflekar, goshverir og fossar

Fossar, jöklar og svartar sandstrendur

Helstu staðir

Þingvellir, hverasvæðið við Geysi, Gullfoss

Seljalandsfoss, Skógafoss, Reynisfjara, Jökulsárlón

Hentar best

Þeim sem koma í fyrsta sinn; áhugafólki um sögu og jarðfræði

Ævintýrafólki og ljósmyndurum

Andrúmsloft

Sígilt og vel skipulagt

Villt, hrátt og víðáttumikið

Gullni hringurinn: sígildu perlurnar

Gullni hringurinn er frægasta ferðamannaleið Íslands. Þetta er um 300 km (187 mílna) hringleið sem hefst og endar nálægt höfuðborginni. Þú getur þó allt eins lagt af stað úr sveitum Suðurlands. Leiðina má auðveldlega klára á einum degi, sem gerir hana tilvalda fyrir þá sem hafa nauman tíma.

Leiðin tengir saman þrjá helstu staðina:

  • Þingvelli

  • Hverasvæðið við Geysi

  • Gullfoss

Þingvellir

Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO og eru krúnudjásn leiðarinnar. Þetta er einn örfárra staða á jörðinni þar sem hægt er að ganga milli Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans. Sigdalurinn er áþreifanlegur vitnisburður um að jörðin er að gliðna í sundur. Hér var líka Alþingi stofnað árið 930, elsta starfandi þing í heimi.

Ef þú hefur auka tíma er vinsælt og skemmtilegt að snorkla milli jarðflekanna með reyndum leiðsögumanni. Í þjóðgarðinum er líka Öxarárfoss, með stórgrýti úr hrauni við fossrótina.

Göngustígur milli jarðfleka á Þingvöllum á Gullna hringnum.

Hverasvæðið við Geysi

Á hverasvæðinu við Geysi rýkur og kraumar í jörðinni. Geysir sjálfur er að mestu í dvala. En Strokkur, rétt hjá, veldur engum vonbrigðum. Hann gýs á 6–10 mínútna fresti og þeytir heitu vatni allt að 40 m (130 fet) upp í loftið.

Göngupallar gera auðvelt að skoða svæðið á öruggan hátt. Á göngunni finnur þú líklega eggjalykt í loftinu. Það er brennisteinninn úr iðrum jarðar.

Goshver þeytir heitu vatni og gufu upp í loftið á Gullna hringnum.

Gullfoss

Gullfoss er gríðarmikill foss í tveimur þrepum sem steypist með þrumugný ofan í djúpt gljúfur. Á sólardögum spanna regnbogar gjarnan úðann. Og á veturna sérðu frosin grýlukerti og snævi þakta bakka allt um kring.

Þessi frægi foss markar ysta punkt Gullna hringsins áður en vegurinn liggur aftur í átt til strandar.

Gott ráð: Gullni hringurinn geymir fjölda leyndra viðkomustaða. Ef þú keyrir sjálf(ur), gefðu þér tíma til að skoða minni fossa, heitar laugar og tómatabúgarð.

Regnbogi myndast í úðanum við Gullfoss á Gullna hringnum.

Suðurströndin: Ísland í botn

Á meðan Gullni hringurinn er fáguð upplifun er suðurströndin heil ævintýrasaga. Leiðin fylgir hringveginum (þjóðvegi 1) austur á bóginn, milli gnæfandi fjalla og brimsins.

Á leiðinni um Suðurland mætir þér meðal annars:

  • Seljalandsfoss

  • Skógafoss

  • Reynisfjara

  • Sólheimajökull

  • Jökulsárlón

  • Demantsströndin

    Frægustu fossarnir: Seljalandsfoss og Skógafoss

    Tveir af frægustu fossum Suðurlands standa við þessa leið. Seljalandsfoss er einstakur því þar getur þú gengið á bak við vatnsflauminn sjálfan. Stuttu austar tekur Skógafoss við, tignarlegur 60 m (197 feta) foss sem myndar oft tvöfalda regnboga.

    Seljalandsfoss undir mjúkum bleikum himni á suðurströndinni.

    Reynisfjara

    Rétt við þorpið Vík býður Reynisfjara upp á dulúðugt og seiðandi landslag. Hún er iðulega nefnd meðal fallegustu stranda heims utan hitabeltisins. Það má þakka voldugu stuðlabergi og Reynisdröngum sem rísa úr hafinu.

    Það er margt hægt að gera í grennd við svörtu sandstrendurnar. Keyrðu út á Dyrhólaey og horfðu yfir Reynisfjöru ofan frá. Þaðan sérðu líka fræga steinbogann og stóru lundabyggðina sem sest þar að á hverju sumri. Þú getur líka farið á fjórhjóli eða íslenskum hesti að flugvélarflakinu á Sólheimasandi skammt undan.

    Inni í stuðlabergshelli í Reynisfjöru á suðurströndinni.

    Jöklar og lón: Sólheimajökull og Jökulsárlón

    Austar breytist landslagið úr hrauni í ís. Þú getur slegist í hóp í jöklagöngu á Sólheimajökli. Fyrir þau sem nenna að keyra aðeins lengra er Jökulsárlón hreinasta augnakonfekt. Þar brotna bláir ísjakar af jöklinum og reka í átt til sjávar. Hinum megin við veginn er Demantsströndin, þar sem jakarnir skolast á land eins og glitrandi kristallar. Ef heppnin er með sérðu kannski forvitinn sel liggja við ísjakana.

    Ísjakar á reki í Jökulsárlóni á suðurströndinni.

    Tíminn: stuttur hringur eða opinn vegur?

    Þegar Gullni hringurinn og suðurströndin eru borin saman er tíminn stærsta breytan.

    • Gullni hringurinn er mjög viðráðanleg dagsferð. Þar sem stutt er milli viðkomustaða getur þú séð alla hápunktana á um 6 klukkustundum. Þá er nægur tími eftir fyrir rólegan kvöldverð eða heitan pott.

    • Suðurströndin krefst meira úthalds. Ferð að Jökulsárlóni og til baka frá Selfossi og nágrenni tekur um 10 klukkustundir, með fáum sem engum stoppum. Á veturna, þegar dagsbirtan er naum, dugar birtan kannski aðeins að Vík og heim aftur.

      Mannfjöldi og andrúmsloft

      Gullni hringurinn er gífurlega vinsæll. Vegna nálægðarinnar við Reykjavík er þar oft þéttskipað af rútum. Ef þú kýst fámenni og næði getur Gullni hringurinn virkað nokkuð fjölmennur á annatímum.

      Suðurströndin er líka vinsæl, en þar dreifast áfangastaðirnir yfir stærra svæði. Austan við Vík fækkar ferðafólkinu verulega. Og þá finnur þú fyrst fyrir víðáttu íslenskra óbyggða.

      Gott ráð: Viltu skoða Gullna hringinn í fámenni? Farðu þá eldsnemma morguns. Eða keyrðu hringinn rangsælis (byrjaðu á Gullfossi), því rúturnar hefja ferðina yfirleitt á Þingvöllum.

      Þjóðvegur 36 á leið að Þingvöllum á Gullna hringnum.

      Veður og akstursskilyrði

      Báðar leiðirnar eru almennt í góðu ástandi, en suðurströndin er berskjaldaðri fyrir veðri og vindum. Hvassviðri af jöklunum getur gert akstur um hringveginn krefjandi, ekki síst á húsbílum. Gullni hringurinn liggur aðeins lengra inn til landsins og í meira skjóli, sem gerir hann öruggari kost í vetrarstormi.

      Athugaðu: Skoðaðu alltaf veðurspána áður en þú leggur af stað, því veðrið á Íslandi getur snúist á örfáum mínútum.

      Black Sand Hotel: hliðið að Suðurlandi

      Góð staðsetning er lykillinn að áhyggjulausri ferð. Í stað þess að keyra aftur til höfuðborgarinnar á hverju kvöldi, af hverju ekki að gista á vel staðsettu hóteli við suðurströndina?

      Black Sand Hotel í Ölfusi er kjörinn staður fyrir þau sem vilja skoða Gullna hringinn eða suðurströndina. Keyrðu 40 mínútur norður frá hótelinu og þú ert komin(n) á Gullna hringinn. Haltu austur, og suðurströndin liggur fyrir fótum þér.

      Fyrir utan miðlæga staðsetningu býður Black Sand Hotel líka upp á:

      • Þægileg herbergi: Herbergi og svítur Black Sand Hotel bera skandinavískt yfirbragð, innblásið af náttúrunni. Öll herbergi með sjávarsýn eru búin hágæða DUX-rúmum svo þú vaknar úthvíld(ur) fyrir næsta ævintýri.

      • Veitingar á staðnum: Eftir dag á ferðinni geta gestir slakað á á veitingastaðnum og barnum ÓMUR. Þar er borinn fram íslenskur matur með útsýni yfir eldfjallalandslagið.

      • Vellíðan: Heilsulind og vellíðunaraðstaða hótelsins er hönnuð fyrir endurheimt, friðsæll staður til að horfa á hafið og himininn.

        Á Black Sand Hotel upplifir þú íslenska náttúru án asa. Þú getur notið Gullna hringsins að morgni og verið komin(n) til baka í fjörugöngu fyrir sólsetur. Og kannski, bara kannski, framlengt ferðina og skoðað suðurströndina strax daginn eftir.

        Löng svört sandströnd við suðurströnd Íslands.

        Hvora leiðina áttu þá að velja?

        Sigurvegarinn í einvígi Gullna hringsins og suðurstrandarinnar ræðst alfarið af þínum ferðastíl.

        Veldu Gullna hringinn ef þú hefur áhuga á sögu, hefur nauman tíma eða vilt sígilda kynningu á íslensku landslagi. Hann er skilvirkur, fræðandi og óneitanlega fallegur.

        Langar þig að sjá svartar sandstrendur, ganga á jökli eða horfa á ísjaka á reki? Þá er suðurströndin leiðin fyrir þig. Hún krefst meiri aksturs, en launin eru eitt mest myndaða landslag jarðar.

        Þegar öllu er á botninn hvolft er best að skoða Suðurland án asa. Með því að koma þér fyrir á hóteli við suðurströndina, eins og Black Sand Hotel, getur þú skoðað báðar leiðirnar frjálst og í rólegheitum.

        Enn í vafa? Skoðaðu þessa fullkomnu þriggja daga ferðaáætlun um Suðurland sem nær bæði yfir Gullna hringinn og suðurströndina.

        Algengar spurningar um Gullna hringinn og suðurströndina

        Er hægt að fara bæði Gullna hringinn og suðurströndina á einum degi?

        Tæknilega séð, já, en það tekur 12 til 14 klukkustundir og flestar samsettar ferðir gefa mjög stuttan tíma á hverjum stað. Betra er að velja aðra leiðina eða skipta þeim á tvo daga.

        Á hvorri leiðinni eru flottari fossar?

        Suðurströndin vinnur á fjölbreytninni. Þar eru Seljalandsfoss (sá sem þú gengur á bak við) og hinn voldugi Skógafoss. Gullni hringurinn státar aðeins af einum stórfossi, Gullfossi, en hann er að öllum líkindum kraftmesti og tilkomumesti foss landsins.

        Er suðurströndin hættulegri en Gullni hringurinn?

        Já, fyrst og fremst vegna aðstæðna við ströndina. Við suðurströndina er Reynisfjara, þekkt fyrir lífshættulegar öldur sem læðast að landi, og akstursvegalengdirnar eru mun lengri. Gullni hringurinn er malbikuð, þétt hringleið sem er alla jafna auðveldari yfirferðar árið um kring.

        Hvað þarf ég raunverulega mikinn tíma fyrir hvora leið?

        Gullna hringinn má klára þægilega á 6–8 klukkustundum. Suðurströndin krefst að minnsta kosti 10–12 klukkustunda, bara að Vík og til baka. Ef þú vilt bæta Jökulsárlóni við þarftu í raun að lágmarki tvo daga svo ferðin verði ekki að þrekraun.

        Hvor leiðin er betri til að sjá norðurljósin?

        Hvorki Gullni hringurinn né suðurströndin tryggja norðurljós, því þau ráðast af sólvirkni og skýjafari. Suðurströndin býður hins vegar upp á dramatískari forgrunn fyrir norðurljósamyndatökur, eins og flugvélarflakið eða stuðlabergið.

        Þarf ég fjórhjóladrifinn bíl á þessar leiðir?

        Á sumrin er fjórhjóladrif óþarft, enda liggja báðar leiðir um malbikaða þjóðvegi. Á veturna er fjórhjóladrif eindregið ráðlagt á suðurströndinni vegna hvassviðris og snöggra breytinga á snjóalögum á hringveginum. Gullni hringurinn er yfirleitt betur ruddur en getur samt verið ísilagður.

        Hvor leiðin er fáfarnari?

        Gullni hringurinn er fjölsóttasta leið landsins vegna nálægðarinnar við Reykjavík. Suðurströndin er líka fjölfarin, en þar dreifast áfangastaðirnir yfir mun stærra svæði, sem gerir hana ögn rýmri á annatímum.