Setustofa Black Sand Hotel

Fyrirtækjaþjónusta · 45 mín frá Reykjavík

Allur hópurinn undir einu þaki.

Árshátíðir, fundir, vinnustofur og hópgisting við svarta sandinn. Salur fyrir 140, 79 herbergi og eldhús ÓMUR, og enginn keyrir heim á miðnætti.

140gestir í mat og gistingu
79herbergi og svítur
ÓMUReldhús og bar
45 mínfrá Reykjavík

Þjónusta

Fjórar leiðir til að taka hópinn út úr bænum.

Veisluborð

Árshátíðir og veislur

Fordrykkur með útsýni yfir sandana, veislukvöldverður frá ÓMUR, dansgólf og herbergið nokkrum skrefum frá.

  • Salur fyrir allt að 140 í sæti
  • Þriggja rétta eða hlaðborð
  • Gisting og morgunverður fyrir allan hópinn
Fá tilboð
Setustofa með útsýni

Fundir og vinnustofur

Dagsfundir, stjórnarfundir og off-site með gistingu. Fundarrými með dagsbirtu, hafið í glugganum og fjaran í kaffipásunni.

  • Fundarrými fyrir 8 til 60
  • Hádegismatur og kaffi frá ÓMUR
  • Dagspakki eða með gistingu
Fá tilboð
Svarta ströndin við sólsetur

Hópgisting og hvataferðir

Allur hópurinn á sama stað, Gullni hringurinn byrjar við dyrnar og norðurljósin sjá um kvöldskemmtunina.

  • Hópverð frá 10 herbergjum
  • Dagskrá um Suðurströndina
  • Rútur og leiðsögn skipulögð
Fá tilboð
Eftirréttur frá ÓMUR

Jólahlaðborð fyrir fyrirtæki

Langborð fyrir minni hópa, salurinn fyrir stærri. Hlaðborð frá ÓMUR, lifandi píanóleikur, gisting í boði.

  • Nóvember og desember
  • Langborð eða allur salurinn
  • Jólapakki með gistingu
Sjá jólahlaðborðið

Svona virkar það

Frá fyrirspurn að morgunverði.

01

Fyrirspurn

Segðu okkur frá hópnum: fjöldi, dagsetning, tilefni. Við svörum með tillögu að dagskrá, matseðli og verði innan sólarhrings.

02

Dagskráin

Salur, matseðill, gisting og ferðir sett upp eftir hópnum. Ekkert eitt verð fyrir alla, hver hópur fær sitt tilboð.

03

Dagurinn

Hópurinn mætir, fær lykla og á staðinn út af fyrir sig. Allir vakna á sama stað og borða morgunverð saman.

Svarti sandurinn

Umgjörð sem enginn veislusalur í bænum á.

Fjaran sem hótelið heitir eftir er nokkur skref frá anddyrinu. Norðurljósin sjá um ljósashowið, við sjáum um rest.

Kanna lausar dagsetningar
Ís á svörtum sandi

Fyrirspurn

Segðu okkur frá hópnum.

Við svörum með tillögu að dagsetningu, dagskrá og verði fyrir hópinn ykkar, engin skuldbinding.

Eða beint: sales@blacksandhotel.is · +354 517 3131

Skissa, formið er ekki virkt.
Tillaga · sept 2026 ForsíðaÓMURPakkarJólFyrirtækiGamla forsíðan