Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Allur fróðleikur / Ferðaráð

Leyndir viðkomustaðir á Gullna hringnum

Leyndir viðkomustaðir á Gullna hringnum

Gullni hringurinn er frægur fyrir þrjá helstu áfangastaði sína: Þingvelli, hverasvæðið við Geysi og Gullfoss. Við mælum með að þú gefir þér góðan tíma á þeim öllum, en okkur langar líka að hvísla að þér leyndarmáli. Innan þessa einstaka svæðis leynast fjölmargir aðrir áhugaverðir staðir og það borgar sig að verja hluta af dýrmætum frítímanum í að heimsækja að minnsta kosti nokkra þeirra. Sumir eru vissulega komnir á kortið hjá ferðafólki, en í samanburði við aðalstaðina fá þeir mun færri gesti. Ef þig langar að veita þessum vanmetnu perlum þá athygli sem þær eiga skilið koma hér nokkrar hugmyndir að stöðum sem vert er að kanna í dagsferð frá Black Sand Hotel.

Brúarhlöð

Ísland er fullt af gljúfrum en þau liggja oft afskekkt og eru torsótt. Brúarhlöð eru ein af gleymdu perlum Gullna hringsins en samt tiltölulega auðfundin. Þetta þrönga gljúfur er í Hvítá, sömu á og Gullfoss fellur um, en fær aðeins brot af þeim gestafjölda sem stórfossinn dregur að sér. Hér er jarðfræðin líka í aðalhlutverki: vatnið sem streymir niður ána hefur sorfið botninn og bakkana og meitlað þybbna stöpla og lágreista kletta úr móberginu. Áin þrengir sér í gegnum skarðið, stundum á miklum hraða, og því er staðurinn jafn spennandi fyrir ævintýrafólk í leit að flúðasiglingu og göngufólk sem vill slóða umvafinn ósnortinni náttúru.

Hellisbúarnir í Laugarvatnshellum

Um allan heim hefur fólk leitað í hella til að búa, hvort sem það var til að verjast árásum eða óblíðri veðráttu. Laugarvatnshellar í hjarta Gullna hringsins eru óvenjulegir að því leyti að fólk gerði sér þar raunverulegt heimili. Uppruni hellanna er á huldu, en ein kenningin segir að keltneskir munkar hafi fyrst nýtt þá alveg í upphafi Íslandsbyggðar. Hitt vitum við, að búið var í þeim þar til furðu nýlega. Eftir aldalanga notkun sem skjól fyrir sauðfé fluttu hjónin Jón Þorvarðsson og Vigdís Helgadóttir í einn hellanna árið 1918 og bjuggu þar í fjögur ár. Í dag hefur hellirinn verið gerður upp og sviðsettur svo gestir fái tilfinningu fyrir því hvernig lífið þar kann að hafa verið. Leiðsögnin tekur aðeins 25 mínútur og því er auðvelt að fella heimsóknina inn í ferðaáætlunina.

Brúarfoss og fleiri fossar

Ef Gullfoss heillaði þig máttu gjarnan vita að á Gullna hringnum er handfylli annarra fossa sem vert er að skoða. Brúarfoss er farinn að rata á radar ferðafólks og er sérstaklega eftirminnilegur fyrir skærbláan lit vatnsins. Vestast á svæðinu, í Mosfellsdal, er vert að finna Helgufoss og Tröllafoss. Sá fyrri er vinsæll sundstaður, þekktur fyrir mosavaxið hraun; sá síðari liggur lengra utan alfaraleiðar og hentar þeim sem sækjast eftir einveru. Haltu að laxveiðiánni Laxá í Kjós til að finna Þórufoss, örfáar mínútur frá þjóðvegi 36. Við hinn stórbrotna Faxa bætir breiddin upp hæðina, þar sem vatnið steypist fram af einni brún í ánni Tungufljóti.

Kerið

Talið er að Kerið hafi myndast fyrir um 3000 árum, þó að sumar heimildir telji það töluvert eldra. Stundum er það ranglega kallað sprengigígur, en rannsóknir benda til þess að það hafi öllu heldur myndast þegar tæmt kvikuhólf eldstöðvar féll saman. Hvað sem því líður er gígurinn tilkomumikil sjón, um 55 metra djúpur og 170 metrar í þvermál. Margir ganga hringinn eftir gígbarminum, en þegar aðstæður leyfa er líka hægt að ganga niður að vatnsbakkanum. Rauði liturinn í berginu vitnar um járnið í því, og skærblái liturinn á steinefnaríku vatninu í botninum stingur fallega í stúf við umhverfið. Grasgræn gróðurþekjan í hlíðunum fullkomnar svo myndina. Kerið er kannski ekki jafn falin perla og áður, en gestafjöldinn er þó hvergi nærri á við stóru staðina þrjá og því á það enn fyllilega heima á þessum lista.

Friðheimar

Við fyrstu sýn hljómar tómatarækt kannski ekki eins og aðdráttarafl fyrir ferðafólk, en þetta er einn áhugaverðasti viðkomustaðurinn á Gullna hringnum. Íslenskt veðurfar, með köldum og dimmum vetrum og fremur svölum sumrum, er varla kjörlendi fyrir slíka ræktun. En Íslendingar eru útsjónarsamir og búa sem betur fer að gnægð af ódýrri endurnýjanlegri orku. Í Friðheimum er jarðhitinn nýttur til að hita gróðurhúsin og gera tómatana að farsælli uppskeru. Þú getur ekki aðeins skoðað gróðurhúsið og séð hvernig þetta er gert heldur líka snætt þar hádegisverð. Pantaðu endilega tómatsúpuna og fáðu þér svo tómatís á eftir, hann kemur skemmtilega á óvart. Líkt og Kerið eru Friðheimar hluti af sumum skipulögðum ferðum og því strangt til tekið ekki lengur leyndarmál, en fjöldinn er samt fjarri því sem þekkist á vinsælustu stöðunum.

Efsti-Dalur

Það er merkilegt, en þrátt fyrir rysjótt veðurfar eru Íslendingar mikið ísfólk. Ef þig vantar afsökun til að gera vel við þig, þá er hún hér. Í stað þess að fara á ísbúð á Selfossi eða í Reykjavík (eða það sem betra er, líka), af hverju ekki að kíkja við á þessum stað á Gullna hringnum? Efsti-Dalur á rætur í kúabúskap en hefur fært út kvíarnar og tekur á móti gestum með loforði um einn besta ís svæðisins. Hvort sem þú velur vanillu, súkkulaði eða árstíðabundið bragð er þetta fullkomin leið til að finna rjómabragðið af mjólkinni frá kúm búsins. Efsti-Dalur býður líka upp á hestaferðir í júní, júlí og ágúst, svo ef þú ert á ferðinni að sumri er það enn ein ástæðan til að leggja lykkju á leið þína.

Secret Lagoon

Jarðböð eru vinsæl afþreying, bæði á Gullna hringnum og utan hans. Á svæðinu er Laugarvatn Fontana fjölsóttast um þessar mundir, en ef sagan heillar þig ættirðu að íhuga dýfu í Secret Lagoon. Þessi staður, einnig þekktur sem Gamla laugin, er elsta sundlaug svæðisins og notalega hrár staður til að liggja í bleyti. Vatnið streymir úr hver í næsta nágrenni og þú getur horft á Litla-Geysi gjósa með reglulegu millibili á meðan þú slakar á í heitu vatninu. Innan skamms bætist svo við annað jarðbað, öllu íburðarmeira. Laugarás Lagoon, sem á að verða svar Gullna hringsins við hinum vinsælu Sky Lagoon og Bláa lóninu, er áætlað að opni árið 2025. Staðurinn verður leyndarmál þar til orðið berst út, svo bókaðu dvöl á Black Sand Hotel fljótlega og prófaðu hann á undan öðrum.