Hvernig á að ljósmynda norðurljósin
Það þarf svolítinn undirbúning að ná góðri mynd af norðurljósunum og í þessari grein förum við yfir nokkur atriði sem gott er að hugsa um áður en þú heldur af stað. Frá búnaðinum sem þú þarft til stillinganna sem þú notar: ef þig langar að ljósmynda norðurljósin með myndavél frekar en snjallsíma er þetta það sem þú þarft að vita.
Finndu hentugan stað meðan enn er bjart
Þótt vel geti farið svo að norðurljósin blasi við um leið og þú stígur út fyrir dyrnar á Black Sand Hotel er margt sem mælir með því að velja sér stað fyrirfram. Best er að hafa óhindrað útsýni til norðurs, en fleira þarf að hafa í huga, ekki síst að staðurinn sé aðgengilegur og öruggur.
Til dæmis þarf gott bílastæði að vera á staðnum, það er ekki skynsamlegt að leggja í vegkanti, sama hversu rólegur vegurinn virðist vera. Staðurinn ætti líka að vera laus við ljósmengun, sem getur dregið úr litunum og gert erfiðara að sjá dýrðina með berum augum. Það getur jafnvel hjálpað að koma sér fyrir bak við eitthvað sem skyggir á ljós.
Dugar snjallsími?
Ef þú átt nýlegan snjallsíma geturðu náð býsna góðum myndum af norðurljósunum á hann, en fyrir bestu myndirnar borgar sig að hafa almennilega myndavél með í för. Hún gefur þér fulla stjórn á stillingunum svo þú getur brugðist við breytilegum aðstæðum. Handvirkur fókus er líka í boði, svo þú getur tryggt að forgrunnurinn sé skarpur. Þetta fer í raun eftir því hversu mikla alvöru þú leggur í ljósmyndunina og hvers konar mynd þú vilt ná.
Skildu snjallsímann samt ekki eftir heima, því stóri skjárinn getur komið sér vel til að átta sig á því sem fyrir augu ber. Ef norðurljósin eru dauf getur verið erfitt að greina hvort þau séu yfirhöfuð á lofti; oft líta þau bara út eins og gráar slæður á himninum með berum augum. Áður en þú stillir upp búnaðinum er því gagnlegt að beina símanum upp í loftið og athuga málið.
Þekktu myndavélina þína
Það er ekki nóg að hafa góða myndavél meðferðis, þú þarft líka að kunna á hana, þótt það hljómi augljóst. Ef ljósmyndun er nýtt áhugamál skaltu kíkja í ljósmyndaklúbb í heimabyggð. Ef þú hefur litla reynslu af næturmyndatöku skaltu bæta úr því með því að taka vélina út eitt kvöld heima hjá þér, jafnvel bara út í garð, og prófa þig áfram með stillingarnar. Það þurfa ekki að vera norðurljós; ljósrákir frá bílum á nálægum vegi duga vel.
Prófaðu mismunandi lýsingartíma þar til þú færð tilfinningu fyrir því hvers konar myndir hvaða stillingar gefa. Að rata um skjái, takka og skífur án þess að þurfa að rýna í vélina sparar líka tíma á norðurljósaveiðunum: sýningin getur verið skammvinn og þú vilt ekki missa af henni af því að þú ert að fálma eftir vasaljósi eða fletta í gegnum endalausar valmyndir.
Taktu réttan þrífót með
Næst er það þrífóturinn. Á Suðurlandi getur verið hvasst, einkum við ströndina, svo það er skynsamlegt að velja þyngri gerð því þær eru alla jafna stöðugri. Þú þarft að finna jafnvægi milli meðfærileika og þess að losna við titring sem eyðileggur myndirnar. Hugsaðu líka út í hversu langt þú þarft líklega að bera hann
Myndavél með hristivörn hjálpar líka, sem og sveigjanlegur búnaður á borð við GorillaPod sem má festa á girðingu. Eins má finna sér skjólgóðan stað þar sem vindurinn nær ekki til þín. Ef þú ætlar að stilla þrífætinum upp á möl, eða ef von er á snjó eða hálku, er kostur að hafa þrífót með göddum.
Fjarstýrður afsmellari
Að ýta á afsmellarann með fingrinum getur hreyft við vélinni, sama hversu varlega þú ferð. Þegar myndirnar eru skoðaðar í fullri stærð gæti komið í ljós að það hafi komið niður á skerpunni. Fjarstýrður afsmellari er ódýr og einföld lausn: þú stingur snúrunni í vélina og ýtir á takkann á fjarstýringunni á hinum endanum. Þráðlausar útgáfur eru líka til, en mundu að kuldi tæmir allar rafhlöður.
Önnur leið er að nota innbyggðan tímastilli vélarinnar. Þegar þú hefur stillt upp myndinni geturðu sett tímastillinn á nokkrar sekúndur svo þú getir sleppt höndunum af vélinni. Í báðum tilfellum þarftu að tryggja að vélin haldist stöðug alla lýsinguna, einkum ef hviður eru í veðri.
Annar búnaður
Fáeinir aðrir hlutir eiga heima í töskunni. Mikilvægust er fullhlaðin aukarafhlaða fyrir myndavélina, geymd þar sem hún er varin fyrir kuldanum. Norðurljósaferðir standa oft í nokkrar klukkustundir og þú verður úti mestallan tímann. Hleðslubanki til að halda símanum gangandi er sömuleiðis góð hugmynd.
Lítið vasaljós kemur líka að góðum notum. Til að losna við ljósmengun verður staðurinn sem þú velur dimmur og því hjálpar ljósið mikið þegar þú fetar þig eftir stíg í sveitinni eða stillir upp búnaðinum þegar þú ert á staðinn kominn. Ef fleiri eru með í för skaltu gæta þess að blinda engan og slökkva á ljósinu þegar þess er ekki þörf svo þú spillir ekki myndunum þeirra.
Gerðu ráð fyrir rigningu. Þótt þú kannir veðurspána í leit að heiðskíru, sem þarf til að njóta norðurljósanna til fulls, geta aðstæður breyst hratt á Íslandi. Hafðu mjúkan klút og linsuklúta meðferðis til að halda linsunni hreinni. Taktu vatnshelda tösku og regnvörn með svo búnaðurinn haldist þurr ef allt fer á versta veg.
Tæknilegar stillingar fyrir myndatökuna
Fyrst af öllu er best að skipta yfir í RAW-snið svo þú getir unnið myndirnar eftir á. Leggðu aðdráttarlinsuna til hliðar og veldu víðari linsu sem nær norðurljósunum yfir stærri hluta næturhiminsins. Kveiktu á handvirkum fókus og stilltu hann á óendanlegt (∞). Stilltu fókusinn á fjarlægt viðfang (til dæmis kirkju, tré eða annan fastan punkt).
ISO-stillingin skiptir líka máli; hún ræður því hversu næm myndflaga vélarinnar er fyrir ljósi. Prófaðu 1600 til að byrja með, en lækkaðu gildið ef sýningin er kröftug; ef ljósin eru dauf gildir hið gagnstæða. Prófaðu þig áfram á staðnum þar til útkoman er eins og þú vilt hafa hana, en gerðu ráð fyrir að þurfa að breyta stillingunum eftir því sem líður á nóttina.
Ljósopið stýrir því hversu mikið ljós berst inn í vélina. Byrjaðu á lágu f-gildi, til dæmis f/2.8 eða f/4, og skoðaðu útkomuna. Ef myndin er of ljós skaltu hækka f-gildið; ef hún er of dökk gerirðu hið gagnstæða. Notaðu þetta samhliða lokarahraðanum, sem getur verið frá 10 sekúndum upp í kannski 30 eftir því hvað norðurljósin eru að gera og hversu virk þau eru.