Pakkar · gisting, matur og drykkur á einum verðmiða

Komdu, við sjáum um rest.

Hver pakki er gisting, matur frá ÓMUR og drykkur, settur saman fyrir tvo og verðlagður í einu lagi. Þú velur pakkann og dagsetningu, allt annað er tilbúið þegar þú mætir.

Gluggasæti með útsýni yfir sandana

Allt árið · vinsælast

Helgi við sandinn

Klassíski pakkinn: ein nótt, kvöldverður og morgunverður, og fjaran fyrir utan gluggann. Bættu við nótt fyrir langa helgi.

1 nóttFyrir tvoInnritun frá 15:00

Gisting

  • Classic King eða Twin
  • Seinni útritun til 12:00

Matur

  • Þriggja rétta kvöldverður á ÓMUR
  • Morgunverður

Drykkur

  • Fordrykkur við komu
  • Kaffi og te á herbergi
frá 59.900 kr. fyrir tvo
Bóka pakkann
Norðurljós yfir ströndinni

September til mars

Norðurljósanótt

Tvær nætur svo líkurnar tvöfaldist. Fjaran er útsýnispallurinn, myrkur, engin ljósmengun, og móttakan vekur ykkur ef himinninn opnast.

2 næturFyrir tvoVakning ef ljósin mæta

Gisting

  • Superior King, sjávarsýn
  • Vakning frá móttöku ef norðurljós sjást

Matur

  • Kvöldverður á ÓMUR fyrra kvöldið
  • Morgunverður báða daga
  • Heitt súkkulaði og kanilsnúður eftir gönguna

Drykkur

  • Fordrykkur við komu
  • Vínpörun með kvöldverði
frá 129.900 kr. fyrir tvo
Bóka pakkann
Matsalur ÓMUR með hafið fyrir utan

Allt árið · maturinn í forgrunni

Kvöldverðarpakki ÓMUR

Fyrir þau sem koma út af matnum. Smakkmatseðill eldhússins með vínpörun, og enginn þarf að keyra heim.

1 nóttFyrir tvoBorð við gluggann

Gisting

  • Junior Suite
  • Seinni útritun til 12:00

Matur

  • Smakkmatseðill Huga, fimm réttir
  • Morgunverður

Drykkur

  • Vínpörun með öllum réttum
  • Kokteill í barnum fyrir matinn
frá 89.900 kr. fyrir tvo
Bóka pakkann
Gullfoss

Allt árið · með dagskrá

Gullni hringurinn byrjar hér

Þingvellir, Geysir og Gullfoss á einum degi, Kerið á leiðinni heim. Leggið af stað eftir morgunverð, kvöldverðurinn bíður.

2 næturFyrir tvoKort og leið tilbúin

Gisting

  • Classic King, tvær nætur
  • Bílastæði og hleðsla

Matur

  • Kvöldverður á ÓMUR bæði kvöld
  • Morgunverður báða daga
  • Nesti fyrir daginn

Drykkur

  • Fordrykkur við komu
  • Hitabrúsi með kaffi í bílinn
frá 139.900 kr. fyrir tvo
Bóka pakkann
Eftirréttur frá ÓMUR

Nóvember og desember

Jólapakkinn

Jólahlaðborðið án þess að hugsa um heimferð. Sjá jólahlaðborðið.

1 nóttFyrir tvoFöstudags- og laugardagskvöld

Gisting

  • Classic King eða Twin
  • Seinni útritun til 12:00

Matur

  • Jólahlaðborð ÓMUR
  • Morgunverður

Drykkur

  • Jólaglögg við komu
  • Píanóleikur í salnum
frá 69.900 kr. fyrir tvo
Bóka pakkann

Verð í skissunni eru placeholder. Pakkar eru bókaðir sem sértilboð í BookVisit (Godo).

Yfirlit

Hvað er í hverjum pakka

Helgi við sandinnNorðurljósanóttKvöldverðarpakkiGullni hringurinnJólapakkinn
Nætur12121
HerbergiClassicSuperior, sjávarsýnJunior SuiteClassicClassic
Kvöldverður3 réttir3 réttir, 1 kvöldSmakkmatseðill3 réttir, 2 kvöldJólahlaðborð
Morgunverður
FordrykkurKokteillJólaglögg
Vínpörun
AukalegaSeinni útritunVakning, heitt súkkulaðiBorð við gluggannNesti, kort, hitabrúsiPíanóleikur
Frá, fyrir tvo59.900129.90089.900139.90069.900

Viðbætur

Byggðu ofan á pakkann.

Allir pakkar taka við viðbótum við bókun eða í móttöku.

Aukanóttfrá 29.900 kr.
Uppfærsla í svítufrá 15.000 kr.
Kampavín á herbergi12.900 kr.
Spa (opnar haust 2026)kynnt síðar
Rúta frá Reykjavíkfyrir hópa
Leiðsögn um Gullna hringinnverð eftir hóp
Svíta á Black Sand Hotel

Pakkar

Gisting, matur, drykkur. Einn verðmiði.

Hópar og fyrirtæki fá sinn eigin pakka, sniðinn að hópnum.

Bóka pakka Fyrir hópa
Tillaga · sept 2026 ForsíðaÓMURPakkarJólFyrirtækiGamla forsíðan