Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Um okkur

Hótel mótað af landinu

Hótelið okkar

Við trúum því að lúxus þurfi ekki að vera hávær.

Hér búa þægindin í litlu hlutunum: vel umbúnu rúmi, mjúkri birtu og stórum glugga þar sem ekkert er nema haf og himinn.

Black Sand Hotel er í Ölfusi, aðeins 40 mínútur frá Reykjavík: kyrrlátt athvarf með 79 vönduðum herbergjum. Markmiðið er einfalt: að skapa stað þar sem náttúran ræður för og fólk getur raunverulega hægt á sér.

Hvert horn hótelsins sækir innblástur í umhverfið: svartan sand, hráa áferð og mýkt sjóndeildarhringsins á suðurströndinni. Með íslensku handverki og skandinavískri hönnun höfum við byggt eitthvað nútímalegt, en jarðbundið.

Svarta ströndin við hótelið

Gestrisni, á okkar hátt

Fyrir okkur snýst góð gestrisni um rými: til að anda, staldra við og líða vel. Við tökum á móti gestum alls staðar að úr heiminum og vonum að þú farir héðan í nánari tengslum við Ísland, og kannski sjálfa(n) þig.

Skoða laus herbergi

Komdu og gistu hjá okkur

Skoða