Hraunbreiður og jarðhitaundur Íslands
Ísland er meðal annars þekkt fyrir hraunbreiður sínar og jarðhitaundur. Um allt land teygja storknuð hraun sig kílómetrum saman og gufa stígur upp úr jörðinni, til marks um sívirka eldvirkni. Þessi náttúrufyrirbæri eru ekki bundin við afskekkt svæði. Mörg þeirra liggja nærri vegum, bæjum og fjölförnum leiðum og eru þannig eðlilegur hluti af hverju ferðalagi um landið.
Í þessari grein er fjallað um hraunbreiður og jarðhitaundur Íslands. Hér finnurðu einnig hagnýt ráð um hvar gott er að hafa bækistöð og hvernig má skoða þessi svæði á öruggan hátt.
Af hverju eru hraun og jarðhitasvæði svona algeng á Íslandi?
Ísland liggur beint á Mið-Atlantshafshryggnum, þar sem Norður-Ameríkuflekinn og Evrasíuflekinn gliðna hægt í sundur. Kvika stígur upp um sprunguna og veldur tíðri eldvirkni. Á þúsundum ára hafa endurtekin eldgos myndað víðáttumiklar hraunbreiður um allt land.
Um leið er jarðskorpan undir Íslandi þunn og hleypir varma neðan úr jörðinni auðveldlega upp á yfirborðið. Það skilar sér í jarðhitasvæðum fullum af hverum, gufuaugum og bullandi leirhverum. Mörg aðgengilegustu hraunin og jarðhitasvæðin eru á Suðurlandi og Reykjanesi og því auðvelt að skoða þau allt árið um kring.
Mosi og lífríki í íslenskum hraunum
Hraun myndast þegar bráðin bergkvika rennur yfir landið og storknar. Tvær megingerðir hrauna finnast víða um land, hvor með sín einkenni:
Helluhraun (pāhoehoe): sléttara og oft reipalaga í áferð, myndast við hægara hraunrennsli
Apalhraun (ʻaʻā): gróft og úfið, myndast við hraðara og óstýrilátara hraunrennsli
Með tímanum þekjast mörg hraun mosa, sem er eitt helsta einkenni þeirra. Á Íslandi vaxa yfir 600 tegundir mosa og margar þeirra þola bæði hvassviðri og frost. Mosinn vex hægt og myndar viðkvæmt vistkerfi. Verði hann fyrir skemmdum getur það tekið áratugi fyrir hann að jafna sig, og því er mikilvægt að halda sig á merktum stígum.
Hraunin hýsa líka annan gróður og dýralíf, einkum eldri hraun þar sem þunnur jarðvegur hefur náð að myndast. Í heimsókn þinni gætirðu séð:
Árstíðabundin villiblóm í skjólsælum lautum
Harðgerðan gróður á borð við birkikjarr
Fugla sem verpa á milli hraundranga
Beitardýr eins og kindur á ferð um hraunið
Allt sýnir þetta að íslensku hraunin eru lifandi vistkerfi sem halda áfram að breytast með tímanum.
Helstu hraunbreiður Íslands
Hraun á Íslandi eru afar ólík að aldri, ásýnd og aðgengi. Frá sléttum, mosavöxnum breiðum yfir í úfið, bert grjót endurspegla þau mismunandi stig eldvirkninnar. Hér að neðan eru nokkur af merkustu hraunum sem hægt er að skoða.
1. Eldhraun: stærsta hraunbreiða Íslands
Eldhraun er ein stærsta hraunbreiða í heimi og þekur um 565 ferkílómetra. Hraunið rann í Skaftáreldum árið 1783, einu öflugasta eldgosi sögunnar. Gosið hafði alvarlegar afleiðingar fyrir umhverfi og fólk og átti þátt í hungursneyð og miklu mannfalli. Í dag er storknað hraunið þakið þykkum, grænum mosa sem gefur landslaginu mjúkt, kyrrlátt og annarsheimslegt yfirbragð.
Eldhraun liggur nærri suðurströndinni og margir aka í gegnum það á leið milli helstu náttúruperla. Hlutar af eldbrunnu landslagi svæðisins voru einnig notaðir á sjöunda áratugnum til að þjálfa áhöfn Apollo 11. Þau svæði, þar á meðal Askja, urðu fyrir valinu því landslagið var talið líkjast yfirborði tunglsins.
2. Berserkjahraun: ævafornt hraun
Berserkjahraun er á Snæfellsnesi og er meira en 4.000 ára gamalt. Hraunið er úfið og ójafnt og mjóir stígar liggja um það þvert og endilangt. Víða er hraunið þakið mjúkum mosa sem myndar fallega andstæðu við hrjúft bergið undir.
Berserkjahraun tengist íslenskum þjóðsagnaarfi sterkum böndum og kemur fyrir í Eyrbyggja sögu, einni af miðaldasögum landsins. Sú tenging gefur svæðinu aukna menningarlega dýpt.
3. Hraunið við Fagradalsfjall: nýstorknuð hraunbreiða
Eldgosin við Fagradalsfjall, sem hófust árið 2021, mynduðu eitt nýjasta aðgengilega hraun landsins. Stór svæði af kólnuðu hrauni eru opin gestum og bjóða upp á að skoða nýmyndað eldbrunnið land í návígi.
Auðvelt er að komast að hrauninu frá Grindavík, Keflavíkurflugvelli og Reykjavík og er svæðið því vinsæll viðkomustaður. Merktar gönguleiðir liggja um svæðið og sú lengsta er um 12 km. Hægt er að fara á eigin vegum með varúð eða í fylgd leiðsögumanns. Aðstæður geta breyst hratt og því er nauðsynlegt að kynna sér nýjustu öryggisupplýsingar fyrir heimsókn.
4. Sundhnúkagígar: aðgengilegt, glænýtt hraun
Sundhnúkagígar á Reykjanesi eru meðal nýjustu hraunmyndana á Íslandi. Svæðið hefur mótast í röð eldgosa á árunum 2023 til 2025. Það gerir staðinn afar áhugaverðan fyrir þau sem vilja fylgjast með eldvirkni samtímans.
Sum gosanna höfðu áhrif á hluta Grindavíkur og hraun náði að svæðum við Bláa lónið, einkum bílastæði þess. Þrátt fyrir það hefur aðgengi að hrauninu sjálfu verið stýrt af varfærni. Aðgengi er yfirleitt greitt en takmarkanir geta breyst eftir virkni hverju sinni, rétt eins og í öðrum hraunum landsins.
5. Dimmuborgir: heimkynni jólasveinanna
Dimmuborgir, skammt frá Mývatni, eru þekktar fyrir stórbrotnar hraunmyndanir, þar á meðal háa dranga, hella og náttúrulega steinboga. Hraunið myndaðist í eldgosi á svæðinu fyrir um 2.300 árum.
Samkvæmt íslenskri þjóðtrú eiga jólasveinarnir heima í Dimmuborgum. Vel við haldnir göngustígar gera svæðið aðgengilegt og hentugt fyrir gesti á öllum aldri.
6. Holuhraun: afskekkt hraun sem aðeins er fært að á sumrin
Holuhraun er sömuleiðis eitt af yngri hraunum landsins, myndað í stóru eldgosi á árunum 2014 til 2015. Gosið hófst á um 7 km langri sprungu sem tengist eldstöðvakerfi Bárðarbungu og þeytti upp miklum hraunstrókum.
Hraunbreiðan þekur um 85 ferkílómetra. Yfirborðið er gróft og bert, allt frá smágrjóti upp í stórar storknaðar hraunblokkir. Aðeins er fært að svæðinu á sumrin, þegar fjallvegirnir F905 og F910 eru opnir. Til að komast þangað þarf fjórhjóladrifinn bíl, gott veður og vandaðan undirbúning, enda liggur leiðin yfir ójafnt hraun.
Upplifðu jarðhitaundur Íslands
Jarðhitaundur Íslands verða til þegar varmi stígur upp undir yfirborð jarðar. Hitinn brýst upp um sprungur í jörðinni og myndar hveri, gufuaugu, goshveri og bullandi leirhveri. Þessi fyrirbæri finnast um allt land og eru misstór og misöflug eftir jarðfræðilegum aðstæðum á hverjum stað.
Hægt er að upplifa jarðhitasvæði á ýmsa vegu. Eftir því hvaða staður verður fyrir valinu geturðu:
Gengið eftir göngupöllum í gegnum virk gufusvæði
Horft á goshveri gjósa frá merktum útsýnisstöðum
Baðað þig í náttúrulegum eða manngerðum heitum laugum þar sem það er leyft
Víða er jarðhitavirknin sýnileg allt árið og gufan stígur upp jafnvel í köldustu mánuðunum. Upplifunin höfðar til allra skilningarvita: brennisteinslyktin liggur í loftinu og hljóðið af sjóðandi vatni og gufu fylgir manni um svæðið. Skýrar merkingar og göngupallar hjálpa gestum að fara um á öruggan hátt og hlífa um leið viðkvæmu landinu.
Helstu jarðhitasvæði til að heimsækja á Íslandi
Auðvelt er að rekast á jarðhitasvæði á ferð um landið. Mörg þeirra eru nærri helstu leiðum og aðgengileg um merkta stíga þar sem hægt er að fylgjast með jarðhitavirkninni á öruggan hátt. Hér eru nokkur af merkustu jarðhitasvæðunum til að heimsækja.
1. Geysir og Strokkur: einn af hápunktum Gullna hringsins
Hverasvæðið við Geysi hefur gefið goshverum um allan heim nafn sitt. Geysir sjálfur gýs aðeins endrum og eins en Strokkur, þar rétt hjá, gýs á nokkurra mínútna fresti og þeytir heitu vatni hátt í loft upp. Göngupallar og útsýnissvæði gera gestum kleift að fylgjast með á öruggan hátt. Svæðið er eitt fjölsóttasta jarðhitasvæði landsins en það er í góðri umsjá og auðvelt yfirferðar.
2. Hverir: rómað hverasvæði norðursins
Hverir, skammt frá Mývatni, eru þekktir fyrir kröftuga jarðhitavirkni. Sjóðandi leirhverir, rjúkandi gufuaugu og skærlitur jarðvegur setja svip sinn á landslagið. Jörðin þar er óstöðug og brennisteinslyktin sterk. Gestir verða að halda sig alfarið á merktum stígum til að forðast slys.
3. Seltún: litríkt hverasvæði
Seltún á Reykjanesi er þekkt fyrir skæra steindaliti og virkan jarðhita. Gufa stígur upp úr jörðinni og hverir liggja þétt við göngustígana. Trépallar leiða gesti um svæðið og gera það auðvelt að skoða. Seltún liggur við veginn og er því þægilegur og fljótlegur viðkomustaður.
4. Gunnuhver: drynjandi hverir
Gunnuhver er eitt öflugasta jarðhitasvæði landsins. Stór gufuaugu blása út gufu í sífellu og skapa háværa og dramatíska stemningu. Öryggisgirðingar umlykja svæðið vegna gríðarlegs jarðhita í jörðinni. Þær ber alltaf að virða í heimsókninni.
5. Hveragerði: hverabærinn
Hveragerði er byggt á virku jarðhitasvæði og hitinn er sýnilegur í hlíðunum ofan bæjarins og allt um kring. Á göngu um bæinn má koma auga á hveri og bullandi leirholur. Gönguleiðir í nágrenninu liggja líka um jarðhitasvæði, þar á meðal að hinni vinsælu heitu á í Reykjadal. Í bænum er öll þjónusta, kaffihús og göngustígar, sem gerir hann að hentugum viðkomustað á ferð um hringveginn.
6. Hveravellir: jarðhitavin á hálendinu
Hveravellir liggja milli Langjökuls og Hofsjökuls á hálendi Íslands. Þar má finna rjúkandi gufuaugu og náttúrulegar heitar laugar í opnu og afskekktu landslagi. Aðeins er fært þangað að sumri til og aðgengi ræðst af færð og veðri. Eins og alltaf þarf að undirbúa ferðina vel.
7. Leirhnjúkur: heitar laugar og rjúkandi gufuaugu
Leirhnjúkur, nærri Kröflusvæðinu, er eitt virkasta jarðhitasvæði landsins. Göngupallar liggja um svæðið og gera gestum kleift að komast nálægt gufuaugum og heitri jörð. Vegna stöðugrar jarðhitavirkni tekur landslagið sífelldum breytingum. Stígum og útsýnisstöðum kann að vera hnikað til í takt við aðstæður hverju sinni.
Hverir og jarðböð á Íslandi
Jarðhitinn er ekki bara sjónarspil; hann býður gestum líka að hægja á sér og sökkva sér ofan í heitt vatn. Ef þig langar í hlýtt bað á milli ferðalaga eru þessir staðir vel þess virði að skoða:
Bláa lónið: Heimsþekkt, mjólkurblátt lón í hrauninu skammt frá Reykjavík.
Sky Lagoon: Nánari upplifun innblásin af íslenskri baðhefð.
Secret Lagoon (Gamla laugin): Ein elsta náttúrulega sundlaug landsins og leynistaður á Gullna hringnum.
Jarðböðin við Mývatn (Earth Lagoon): Rólegri jarðbaðsstaður í nágrenni Mývatns á Norðurlandi.
Vök Baths: Fljótandi jarðhitalaugar á Austurlandi með heitu vatni og opnu útsýni yfir Urriðavatn.
Heita áin í Reykjadal: Náttúruleg heit á sem gengið er að, fyrir þau sem sækjast eftir kyrrlátari tengingu við náttúruna.
Þessir staðir sameina munað og landslag og bjóða upp á hlýju og ró mitt í stórbrotinni náttúru Íslands.
Öryggisráð fyrir heimsóknir í hraun og jarðhitasvæði
Eldbrunnið landslag Íslands er stórfenglegt en krefst aðgátar og árvekni. Jörðin getur verið óstöðug og aðstæður breyst hratt.
Hafðu þessi ráð í huga þegar þú heimsækir hraunbreiður og jarðhitaundur landsins:
Haltu þig á merktum stígum: Ómerkt hraun og mosavaxin svæði geta verið óstöðug og viðkvæmur mosi getur verið áratugi að jafna sig eftir skemmdir.
Notaðu göngupallana á jarðhitasvæðum: Þeir eru lagðir til að halda gestum frá hættulega heitri jörð og gufuaugum.
Snertu ekki hverina: Heit jörð, leir og vatn geta valdið alvarlegum brunasárum, jafnvel þótt allt virðist með kyrrum kjörum.
Kannaðu aðstæður fyrir brottför: Veður og eldvirkni geta haft áhrif á aðgengi og öryggi, sérstaklega á virkum eða afskekktum svæðum. Á SafeTravel.is finnurðu nýjustu upplýsingar.
Vertu í almennilegum skóm: Traustir skór með góðu gripi draga úr hættu á að renna á ójöfnu hrauni og blautu undirlagi.
Með því að fylgja þessum leiðbeiningum verndarðu bæði sjálfa(n) þig og viðkvæma náttúru landsins.
Hvar er gott að gista nærri hraunum og jarðhitaundrum?
Reykjanesskaginn er eitt eldvirkasta svæði landsins og suðupunktur jarðhitavirkni. Það liggur því beint við að hafa bækistöð í grenndinni ef þig langar að upplifa íslensk hraun og jarðhitaundur í návígi. Suðurströndin þar skammt frá veitir sömuleiðis greiðan aðgang að jarðhitasvæðum, svörtum sandströndum og helstu leiðum.
Með því að gista á suðurströndinni geturðu skoðað Reykjanes, Suðurland og jafnvel Gullna hringinn yfir daginn. Black Sand Hotel, sem stendur við suðurströndina, hentar einkar vel sem bækistöð fyrir slík ferðalög. Staðsetningin við ströndina skapar sterka tengingu við íslenska náttúru en um leið er stutt í öll helstu svæði.
Á þessu suðurlandshóteli finnurðu:
Þægileg herbergi og svítur í skandinavískum anda
Herbergi með útsýni yfir hafið og himininn
Ómur Restaurant & Bar á staðnum fyrir afslöppuð kvöld
Heilsulind og vellíðunaraðstöðu
Hvort sem leiðin liggur vestur, norður eða austur er Black Sand Hotel hentug bækistöð til að kanna fjölbreytt landslag Íslands.
Kannaðu annarsheimslegt landslag Íslands
Hraunbreiður og jarðhitasvæði Íslands veita skýra innsýn í náttúruöflin sem halda áfram að móta landið. Ævaforn, mosavaxin hraun standa við hlið nýmyndaðs lands og virkra jarðhitasvæða og sýna hvernig Ísland er í stöðugri mótun.
Með því að fara um þessi svæði af virðingu og gefa sér tíma til að skoða vel öðlast gestir dýpri skilning á íslenskri náttúru. Að heimsækja hraunin á rólegri hraða skilar bæði öruggari heimsókn og innihaldsríkari upplifun.
Algengar spurningar um hraun og jarðhitaundur Íslands
Eru hraunbreiður á Íslandi?
Já, á Íslandi eru óteljandi hraun sem hafa myndast í endurteknum eldgosum á þúsundum ára. Þau liggja víða um land og eru meðal sérstæðustu landslagsgerða þess.
Hvar get ég séð rennandi hraun á Íslandi?
Stundum má sjá rennandi hraun í eldgosum á Reykjanesskaga, meðal annars við Sundhnúkagíga og Fagradalsfjall. Aðgengi ræðst af aðstæðum hverju sinni og getur verið takmarkað. Fylgdu alltaf opinberum leiðbeiningum og öryggisupplýsingum.
Hver er stærsta hraunbreiða Íslands?
Eldhraun er stærsta hraunbreiða Íslands. Það rann í Skaftáreldum undir lok 18. aldar og þekur víðáttumikið svæði á Suðurlandi.
Af hverju er bannað að taka hraungrýti á Íslandi?
Að fjarlægja hraun veldur skemmdum á vernduðu landslagi. Mörg hraun eru friðlýst svæði og óheimilt er að taka þaðan grjót.
Má ganga um hraun á Íslandi?
Já, þú getur gengið um hraun þar sem stígar eru skýrt merktir. Að ganga á mosavöxnu hrauni veldur langvarandi skemmdum.
Er brennisteinslykt af jarðhitasvæðum á Íslandi?
Já, af jarðhitasvæðum landsins er brennisteinslykt. Lyktin stafar af brennisteinsvetni sem losnar við virkan jarðhita. Sum lýsa henni sem „eggjalykt“.
Er öruggt að heimsækja jarðhitasvæði Íslands að vetri til?
Já, það er öruggt að heimsækja jarðhitasvæðin svo lengi sem þú ferð að öllu með gát, sérstaklega í hálku. Nauðsynlegt er að halda sig á merktum stígum.