Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Allur fróðleikur / Ferðaráð

Hvernig skipuleggur þú hið fullkomna lúxusferðalag um Ísland?

Hvernig skipuleggur þú hið fullkomna lúxusferðalag um Ísland?

Ísland er einn gjöfulasti áfangastaður heims fyrir ferðalag á eigin bíl. Fallegir vegir tengja saman jökla, fossa, eldfjallalandslag, svartar sandstrendur og strandbæi, svo hver einasti akstur verður hluti af ævintýrinu.

Lúxusferðalag um Ísland á eigin bíl er enn ríkulegri leið til að kynnast landinu. Í stað þess að þjóta á milli staða ferðast þú í þægindum, nýtur ógleymanlegra upplifana og gefur þér tíma til að meðtaka einstakt landslag landsins. Hvort sem þú ætlar að verja nokkrum dögum við suðurströndina eða fara í lengra ferðalag um landið verður ferðin ánægjulegri á rólegri hraða.

Í þessari grein förum við yfir hvað gerir lúxusferð á eigin bíl um Ísland svona sérstaka. Auk hagnýtra ráða sem hjálpa þér að skipuleggja þægilega og eftirminnilega ferð.

Hvernig lítur lúxusferðalag um Ísland út?

Lúxus þýðir sitthvað fyrir hvern og einn. Á Íslandi snýst hann síður um íburð og meira um að upplifa landið á eigin hraða, í þægindum.

Lúxusferðalag um Ísland felur gjarnan í sér:

  • Gistingu á boutique-hótelum umvöfðum náttúru

  • Þægilegan bíl sem hentar íslenskum vegum

  • Fallegar akstursleiðir frekar en þá stystu

  • Slökun í jarðböðum eftir dag á ferðinni

  • Íslenskan mat úr fersku hráefni úr héraði

  • Svigrúm fyrir óvænt stopp og ógleymanlegt útsýni

Margir ferðalangar velja þennan ferðamáta því hann leyfir þeim að upplifa íslenskt landslag án nokkurs asa. Þú getur stoppað fyrir myndatöku í hvert sinn sem landslagið breytist, tekið fallega krók á leiðina eða einfaldlega notið akstursins.

Hvers vegna Suðurland er tilvalið fyrir lúxusferð á eigin bíl

Suðurland er eitt besta svæði landsins fyrir lúxusferðalag á eigin bíl. Þar fara margar af þekktustu náttúruperlum Íslands saman við þægilegar akstursvegalengdir, svo auðvelt er að skoða sig um án þess að sitja tímunum saman undir stýri.

Sumir velja Suðurland sem ferðaleið því svæðið býður upp á:

  • Fjölbreytt landslag í þægilegri akstursfjarlægð

  • Stuttar, fallegar akstursleiðir sem skilja eftir meiri tíma til að skoða

  • Jafnvægi ævintýra og slökunar, allt frá jöklagöngum til jarðbaða

  • Þægileg boutique-hótel umvafin íslenskri náttúru

  • Greiða leið frá Reykjavík, svo auðvelt er að hefja ferðina

    Suðurland býður upp á fullkomið jafnvægi þæginda, landslags og ógleymanlegra upplifana.

    Par í lopapeysum á ferðalagi um Ísland.

    Hvernig lyftir þú bílferðinni um Ísland á hærra plan?

    Lúxusferðalag snýst um meira en að velja vandaða gistingu. Litlu atriðin, allt frá bílnum sem þú keyrir til upplifananna sem þú bókar, geta gert ferðina þægilegri, eftirminnilegri og ánægjulegri. Hér eru nokkrar leiðir til að gera meira úr tímanum á veginum.

    1. Leigðu þægilegan gæðabíl

    Þú verður lengi í bílnum, svo rétta valið skiptir sköpum. Vandaður jeppi eða lúxusbíll veitir auka þægindi á lengri leiðum og nóg pláss fyrir farangur og útivistarbúnað.

    Eftir árstíð og ferðaáætlun er vert að skoða bíl með búnaði á borð við:

    • Fullkominn öryggisbúnað

    • Sætis- og stýrishita

    • Rúmgott innra rými og farangursrými

    • Fjórhjóladrif fyrir aukið öryggi í breytilegri færð

      Ef þú ferðast að vetri til eða ætlar út fyrir helstu vegi veitir fjórhjóladrifinn bíll betra grip og stöðugleika.

      Hugarró er hluti af lúxusupplifuninni. Eftir því hvaða bíl þú leigir geta viðbótartryggingar veitt auka vernd gegn algengum skakkaföllum eins og grjótkasti, sand- og öskufoki eða framrúðutjóni. Þannig getur þú haft minni áhyggjur og einbeitt þér að því að njóta akstursins.

      Hvítur fjórhjóladrifinn bíll þverar litla á á Íslandi.

      2. Veldu fallegar leiðir frekar en þær fljótlegustu

      Einn helsti kostur lúxusferðar á eigin bíl um Ísland er frelsið til að hægja á sér. Í stað þess að fara alltaf stystu leið, veldu vegi sem sýna þér meira af íslensku landslagi á leiðinni.

      Hringvegurinn um Suðurland er kjörið dæmi. Í stað þess að keyra bara á milli áfangastaða ferðu fram hjá fossum, jöklum, svörtum sandströndum, hraunbreiðum og útsýnisstöðum við ströndina.

      Ef leiðin liggur á Vesturland, íhugaðu að taka veg 47 fyrir Hvalfjörð í stað þess að fara Hvalfjarðargöngin. Leiðin tekur lengri tíma en launar þér með fallegu útsýni yfir fjörðinn, kyrrlátum þorpum og útsýnisstöðum við ströndina.

      Þú getur líka byggt ferðina í kringum fallegar hringleiðir landsins, þar á meðal:

      • Gullna hringinn með fossum, goshverum og Þingvöllum

      • Silfurhringinn með heitum laugum, hraunhellum, fossum og sögustöðum á Vesturlandi

      • Demantshringinn með fossum, eldfjallalandslagi og strandlengju á Norðurlandi

        Hafðu borð fyrir báru í dagskránni svo þú getir stoppað í hvert sinn sem fallegt landslag fangar augað. Bestu minningarnar verða oft til á óvæntum stöðum milli frægu áfangastaðanna.

        Fallegur vegur hlykkjast milli íslenskra fjalla undir bleikum himni.

        3. Slakaðu á í íslenskum jarðböðum

        Eftir dag á ferðinni jafnast ekkert á við að láta líða úr sér í náttúrulega heitu vatni. Jarðböðin sameina slökun og stórbrotið umhverfi og eru kjörin viðbót við hvaða lúxusferðalag sem er.

        Eftir því hvar leiðin liggur er vert að heimsækja:

        • Bláa lónið fyrir hið rómaða steinefnaríka vatn og kísilleirmaskann

        • Sky Lagoon fyrir óhindrað hafútsýni og sjö þrepa Skjól-ritúalið

        • Hvammsvík fyrir einstaka, friðsæla umgjörð við fjörðinn

        • Gömlu laugina (Secret Lagoon) fyrir hefðbundna jarðbaðsupplifun

          Nokkrar klukkustundir í baði eru fullkomið mótvægi við virka daga í göngum, skoðunarferðum eða akstri.

          Fyrir enn ríkulegri upplifun, íhugaðu að uppfæra í vandaðri pakka. Þeim fylgja oft auka fríðindi, svo sem aðgangur að heilsulindaraðstöðu, einkaaðstöðu, veitingum eða húðvörum.

          Gufa stígur upp af mjólkurbláu vatni Bláa lónsins.

          4. Njóttu íslensks matar og fínni veitingastaða

          Góður matur er ómissandi hluti af lúxusferðalagi. Frekar en að flýta þér milli staða, gefðu þér tíma fyrir máltíðir úr fersku hráefni úr héraði í eftirminnilegri umgjörð.

          Margir veitingastaðir á Suðurlandi leggja áherslu á árstíðabundna matseðla með afurðum úr héraði og hefðbundnu íslensku bragði. Leitaðu að réttum með:

          • Íslensku lambakjöti

          • Ferskum fiski og sjávarfangi, eins og bleikju

          • Grænmeti og kryddjurtum úr héraði

          • Heimabökuðu rúgbrauði og mjólkurafurðum

            Fyrir eftirminnilega matarupplifun, kíktu á veitingastaðinn ÓMUR á Black Sand Hotel. Árstíðabundinn matseðillinn dregur fram íslenskt hráefni í nútímalegri umgjörð. Þar getur þú notið bragða úr héraðinu með útsýni yfir Óseyrartanga, eina af huldu svörtu ströndunum á Suðurlandi.

            Íslenskur leturhumar með rækjum og sítrónusneiðum.

            5. Bókaðu ferðir með einkaleiðsögn

            Ein einfaldasta leiðin til að lyfta lúxusferðalagi um Ísland á hærra plan er að bæta við einni eða tveimur einkaupplifunum. Slíkar ferðir eru persónulegri og þú kynnist landinu í fylgd staðkunnugra sérfræðinga.

            Á Íslandi er enginn hörgull á einstökum upplifunum sem vert er að byggja heilan dag í kringum. Eftir áhugasviði má nefna:

            • Jöklagöngur

            • Vélsleðaferðir

            • Hraunhellaferðir

            • Íshellaferðir eftir árstíð

            • Bátsferðir um jökullón

            • Þyrlulendingar á jökli

            • Einkaferðir á ofurjeppum

            • Norðurljósamyndaferðir

            • Hestaferðir um hraunbreiður Íslands

            • Hvalaskoðun eða lundaferðir á hraðbátum

              Minni hópar, sveigjanleg dagskrá og reyndir leiðsögumenn af svæðinu gera ferðalagið þægilegra og eftirminnilegra.

              Ferðafólk ríður íslenskum hestum yfir mosavaxnar hraunbreiður.

              6. Gistu á boutique-hóteli með lúxusþægindum

              Gistingin getur mótað alla ferðina. Eftir dag á ferðinni um Suðurland er fátt betra en að snúa aftur á boutique-hótel þar sem hugsað er fyrir öllu.

              Við val á gistingu er gott að horfa eftir atriðum eins og:

              • Vönduðum rúmum og hágæða líni

              • Rúmgóðum, vel hönnuðum herbergjum

              • Heilsulind eða vellíðunaraðstöðu

              • Veitingastað og bar á staðnum

              • Fallegu umhverfi með greiðri leið að helstu stöðum

                Black Sand Hotel í Ölfusi býður upp á allt þetta í friðsælli umgjörð við suðurströndina, þar á meðal:

                • L'OR kaffi- og tesett á herbergjunum

                • Notaleg herbergi og svítur í skandinavískum anda

                • DUX hágæðarúm með Quagliotti bómullarlíni

                • Garnier-Thiebaut handklæði og [Comfort Zone] baðvörur

                • Heilsulind og veitingastað á staðnum fyrir þægilega slökun

                • Greiða leið að mörgum af helstu perlum Suðurlands

                  Staðsetningin við kyrrláta svarta strönd skapar auk þess friðsælt andrúmsloft og meira næði.

                  Snyrtilega samanbrotin handklæði á hótelrúmi.

                  7. Íhugaðu að dvelja lengur á hverjum stað

                  Í stað þess að skipta um hótel á hverju kvöldi, íhugaðu að gista 2–3 nætur á sama stað. Rólegri taktur þýðir minni tíma í að pakka og keyra, og þú nýtur afslappandi frís á Íslandi þeim mun betur.

                  Með boutique-hótel sem bækistöð verða dagsferðir auðveldar og þú átt alltaf þægilegan stað að hverfa heim á að kvöldi. Við suðurströndina getur þú þannig skoðað fossa, jökla, svartar sandstrendur og útsýnisstaði í nágrenninu án nokkurs asa. Með meiri tíma á einum stað getur þú notið langra máltíða, slakað á í jarðbaði og fundið faldar perlur.

                  Ráð við skipulagningu lúxusferðar um Ísland

                  Smá fyrirhyggja hjálpar þér að njóta afslappaðri og þægilegri ferðar. Hafðu þessi ráð í huga áður en þú leggur af stað í lúxusferðalagið um Ísland:

                  • Ferðastu á jaðartímabilunum: Vor og haust bjóða upp á rólegri og fágætari upplifun. Þá er gjarnan minni mannfjöldi á vinsælum stöðum og betra framboð á boutique-hótelum, veitingastöðum og vandaðri upplifunum.

                  • Bókaðu boutique-gistingu snemma: Boutique- og lúxushótel við suðurströndina fyllast oft mörgum mánuðum fyrir háannatíma, svo það borgar sig að vita hvernig þú velur rétta hótelið áður en þú bókar.

                  • Ferðastu á rólegri hraða: Verðu meiri tíma á færri stöðum í stað þess að reyna að sjá allt. Afslöppuð ferðaáætlun gefur hverri upplifun meira rými.

                  • Gerðu ráð fyrir hvíldarstundum: Skildu eftir pláss fyrir langa hádegisverði, jarðböð eða einfaldlega notalega stund á hótelinu í stað þess að fylla hverja klukkustund af skoðunarferðum.

                  • Bókaðu vandaðri upplifanir fyrir fram: Einkaferðir, þyrluflug, jöklaævintýri og heilsulindarpakkar eru oft með takmarkað framboð og ætti að bóka snemma.

                  • Skipuleggðu í kringum borðapantanir: Ef það eru veitingastaðir sem þú vilt alls ekki missa af, pantaðu borð fyrir fram, sérstaklega yfir sumarið.

                  • Veldu eitt eða tvö vegleg dekur: Hvort sem það er þyrlulending eða vandaður heilsulindarpakki gera fáar en vel valdar upplifanir ferðina eftirminnilegri.

                    Með góðri fyrirhyggju verður ferðalagið afslappaðra, þægilegra og eftirminnilegra.

                    Skógafoss séður innan úr bíl.

                    Hægðu á þér og upplifðu Ísland í þægindum

                    Hvert ferðalag um Ísland er einstakt, en þau bestu skilja eftir rými til að hægja á sér. Löng og góð kvöldmáltíð eða slökun í jarðbaði getur verið alveg jafn eftirminnileg og fossarnir og jöklarnir.

                    Lúxusferðalag um Ísland mælist ekki í fjölda staða sem þú heimsækir, heldur í því hversu vel þú upplifir þá. Vönduð gisting, vel valdar upplifanir og afslöppuð ferðaáætlun leyfa þér að njóta ferðarinnar til jafns við áfangastaðinn.

                    Fyrir ferðalanga á suðurströndinni er Black Sand Hotel friðsælt athvarf milli ævintýra. Kyrrlát umgjörð, lúxusþægindi og hentug staðsetning gera hótelið að kjörinni bækistöð til að kynnast einu fegursta svæði landsins.

                    Tilbúin(n) að hefja skipulagninguna? Lestu þriggja daga lúxusferðaáætlunina okkar um Ísland og sæktu þér innblástur.

                    Algengar spurningar

                    Er hægt að keyra sjálf(ur) um Ísland?

                    Já, að keyra á eigin bíl er ein vinsælasta leiðin til að skoða Ísland. Vel við haldnir vegir tengja saman flesta helstu áfangastaði landsins og gefa þér frelsi til að ferðast á eigin hraða.

                    Er Ísland gott land fyrir lúxusferðalag á bíl?

                    Já, Ísland er frábær áfangastaður fyrir lúxusferðalag á bíl. Hér eru fallegar akstursleiðir, boutique-gisting, jarðböð, framúrskarandi matur og ógleymanlegt landslag.

                    Hver er besta lúxusakstursleiðin á Íslandi?

                    Einn besti kosturinn er lúxusferð um suðurströndina. Hún sameinar fossa Suðurlands, jökla, svartar sandstrendur, jarðböð og fallegan akstur við ströndina í þægilegum dagleiðum.

                    Hvað þarf marga daga í lúxusferð um suðurströndina?

                    Að minnsta kosti 3 dagar eru kjörnir fyrir þægilega bílferð um suðurströndina. Þá hefur þú nægan tíma fyrir hápunkta svæðisins og um leið rými til að slaka á og njóta hvers áfangastaðar án asa.

                    Þarf fjórhjóladrifinn bíl í lúxusferðalag um Ísland?

                    Ekki alltaf. Á sumrin dugar venjulegur bíll á flestum malbikuðum vegum, þar á meðal um suðurströndina. Ef þú kemur að vetri til eða ætlar að aka malarvegi eða inn á hálendið er mælt með fjórhjóladrifi.

                    Hvar er best að gista í lúxusferðalagi um Ísland?

                    Boutique-hótel umvafin náttúru, eins og Black Sand Hotel, eru frábær kostur. Þau bjóða upp á rólegra andrúmsloft, þægilega gistingu og greiða leið að nærliggjandi perlum, svo þú færð sem mest út úr ferðinni.

                    Dugar suðurströndin ein og sér í eitt ferðalag?

                    Já, á Suðurlandi er nóg af áfangastöðum og upplifunum fyrir eftirminnilegt ferðalag út af fyrir sig. Milli fossa, jökla og svartra sandstranda getur þú notið margra daga án þess að þurfa að keyra hringinn um allt land.