Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Allur fróðleikur / Ferðaráð

Töfrandi helgi á Suðurlandi

Töfrandi helgi á Suðurlandi

Ertu að skipuleggja Íslandsferð og heillast af hugmyndinni um Gullna hringinn og dásamlegt landslag suðurstrandarinnar? Black Sand Hotel er kjörinn samastaður fyrir helgarferð og á aðeins tveimur dögum getur þú séð nokkrar af mögnuðustu náttúruperlum landsins. Við höfum sett saman ferðaáætlun sem sýnir þér hvernig þú nýtir tímann sem best svo ferðin verði ógleymanleg. En hafðu varann á: Ísland er ávanabindandi staður og þig mun langa að koma aftur.

Dagur 1
Gullni hringurinn

Leggðu af stað frá hótelinu í morgunsárið og taktu eina skemmtilegustu ökuleið Íslands: Gullna hringinn. Þessi hringleið liggur um nokkrar af þekktustu og glæsilegustu náttúruperlum Suðurlands og er ómissandi hluti af hverri ferð. Þar sem Black Sand Hotel stendur svo nálægt leiðinni getur þú nýtt tímann til fulls í að dást að því sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Þegar þú kemur að sunnan eftir vegi 35 er fyrsti viðkomustaðurinn Kerið. Þessi myndræni gígur myndaðist fyrir um 3000 árum þegar kvikuhólf eldstöðvar tæmdist og landið hrundi saman með miklum látum. Í dag einkennist hann af óvenjulegum litum. Skærblátt vatnið sem fyllir gíginn nýtur sín fullkomlega á móti rauðleitu berginu sem rís upp af því og myndar bratta skál í landinu.

Snúðu aðeins til baka að gatnamótunum við veg 36 og haltu áfram norður inn í Gullna hringinn. Stefndu á þann stað sem er ef til vill sögufrægastur á öllu Íslandi: Þingvelli. Svæðið er nú þjóðgarður, en hér kom fyrsta þing Íslendinga saman fyrir meira en þúsund árum. Alþingi safnaðist hér saman til að ræða mikilvæg mál og setja lög allt þar til þinghaldið fluttist til Reykjavíkur.

Þó að sagan drjúpi af hverju strái þegar þú gengur frá bílastæðinu niður í Almannagjá er hún ekki eina ástæðan til að koma hingað. Þessi heillandi staður er líka ómissandi vegna stórmerkilegrar jarðfræði, sem blasir strax við þegar þú röltir niður í bratta gjána, skoðar fossa í hvörfum eins og Öxarárfoss eða snorklar jafnvel í kristaltæru en ísköldu vatni Silfru, síuðu í gegnum bergið í kring.

Það getur verið erfitt að slíta sig frá slíkum stað, en tvær aðrar stórkostlegar náttúruperlur bíða og heilla engu síður. Sú fyrri, í innan við klukkustundar fjarlægð, er hverasvæðið við Geysi. Jarðhitasvæðin á Íslandi eru mörg en aðeins eitt státar af Strokki. Þessi frábæri goshver gýs á nokkurra mínútna fresti og þeytir strók af sjóðheitu vatni og gufu hátt í loft upp, áhorfendum til mikillar gleði.

Þríeykið fullkomnar svo Gullfoss. Hann er einn kraftmesti foss landsins og gríðarlegt vatnsmagn steypist þar fram af tvöföldum stalli í Hvítá. Náttúran setur upp alvöru sýningu og þú kemst nógu nálægt fossbrúninni til að finna úðann. Taktu með þér regnhelda flík ef þú vilt ekki keyra rennblautur eða rennblaut til baka á hótelið.

Jarðböð: ómissandi upplifun á Gullna hringnum

Hvaða leið sem þú velur um Gullna hringinn viltu örugglega heimsækja að minnsta kosti eitt af rómuðu jarðböðum Íslands. Þau eru afar ólík: sum eru stílhrein, glæsileg og fáguð en önnur bjóða sveitalegri upplifun. Hvert um sig hefur sinn sjarma og hvert sem verður fyrir valinu áttu eftir að tala um það lengi eftir heimkomuna.

Góðu fréttirnar eru þær að Gullni hringurinn er jarðhitasvæði og því er úrvalið nóg, svo þú finnur umgjörðina sem hentar þér best. Skoðum nokkra af kostunum:

  • Laugarvatn Fontana

Eitt vinsælasta baðið á Gullna hringnum er Laugarvatn Fontana. Þessi þægilegi kostur telst líklega í milliflokki. Þar eru heitar laugar með útsýni yfir fallegt vatnið, og ef þér hitnar um of getur þú kælt þig með dýfu í vatninu sjálfu. Einnig er í boði að bæta við heimsókn í hverabakaríið, þar sem þú lærir hvernig rúgbrauð er bakað og smakkar þetta ljúffenga, rjúkandi góðgæti um leið og það er grafið upp úr heitum sandinum.

  • Gamla laugin (Secret Lagoon)

    Gamla laugin er talin elsta sundlaug Íslands. Á ensku gengur hún undir nafninu Secret Lagoon, en heimafólk fór fyrst í laugina árið 1891. Hún stendur við Hverahólma, jarðhitasvæði nálægt Flúðum, og fær stöðugt rennsli af brennisteinsríku, heitu vatni úr Vaðmálahver, Básahver og Litla Geysi. Sá síðastnefndi stenst Strokki ekki snúning en er þó virkur goshver sem gýs á nokkurra mínútna fresti.

    • Laugarás Lagoon

      Síðsumars 2025 opnar ný jarðhitalaug sem færir svæðinu vænan skammt af lúxus. Laugin er hönnuð af arkitektum og fáguð notkun á náttúrulegum viði og öðrum efnum tryggir að hún fellur fullkomlega inn í umhverfið. Laugin er á tveimur hæðum með óendanleikabrún og þar er líka sauna. Hún á líklega eftir að verða vinsæl meðal ferðafólks, svo þú getur montað þig af því að vera með þeim fyrstu sem njóta hennar.

      • Reykjadalur

        Á hinum enda skalans, en engu síður freistandi, er heita áin sem rennur um Reykjadal. Upphaf gönguleiðarinnar er varla hálftíma akstur frá Black Sand Hotel en þaðan tekur við um 45 mínútna ganga upp með ánni. Þegar þú kemur að pöllunum meðfram ánni ertu komin eða kominn á baðstaðinn. Gufan stígur upp og í kring blasir við stórfenglegur bakgrunnur íslenskrar náttúru eins og hún gerist best, sannarlega göngunnar virði.

        Dagur 2
        Suðurströndin

        Ef þér þótti Gullni hringurinn tilkomumikill skaltu bíða þar til þú ferð austur eftir stórbrotinni suðurströnd Íslands. Þessi landshluti dregur að sér ferðafólk hvaðanæva að og þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Við mælum með að fyrsta stoppið eftir að lagt er af stað frá hótelinu sé Seljalandsfoss; þessi hrífandi foss er vinsæll áfangastaður enda hægt að ganga bak við vatnsflauminn.

        Skógafoss er varla 20 mínútum austar, og ef þú efast um að annar foss eigi erindi á dagskrána hverfur sá efi um leið og þú berð hann augum. Fossinn stendur aðeins innar en hringvegurinn en sést vel frá honum, og oft myndast regnbogi (stundum tvöfaldur) yfir fossinum. Gefðu þér tíma til að ganga upp tröppurnar við hlið Skógafoss og horfa yfir suðurströndina af brúninni.

        Frægasta fjara Íslands, Reynisfjara, er rétt vestan við hinn vinalega ferðamannabæ Vík. Hún er í innan við tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá hótelinu svo settu þessa svörtu sandfjöru endilega á dagskrána. Þar er risavaxinn hellir umkringdur háum stuðlabergssúlum og óhindrað útsýni yfir Reynisdranga, hrikalega sjávardranga rétt undan landi.

        En ástæðan fyrir því að Reynisfjara ratar í fréttirnar er öllu alvarlegri: óvæntu öldurnar sem skella stundum á ströndinni geta hrifið fólk með sér, því miður stundum með hörmulegum afleiðingum. Viðvörunarkerfi er á staðnum; farðu alltaf eftir leiðbeiningum og snúðu aldrei baki í öldurnar.

        Þú gætir líka viljað staldra við á Dyrhólaey í næsta nágrenni. Þessi höfði skagar út í sjó og hafið hefur sorfið í hann risastórt gat. Til að átta sig á stærðinni má nefna að ofurhugi á lítilli flugvél flaug eitt sinn í gegnum gatið, en það mælum við ekki með að neinn endurtaki. Á sumrin er höfðinn hins vegar frábær staður til fuglaskoðunar og þú gætir komið auga á einhverja af skemmtilegustu sumargestum Íslands, kómísku og klaufalegu lundana sem koma hingað til að verpa og koma ungum sínum á legg.

        Fræðilega séð er hægt að komast að Jökulsárlóni í dagsferð frá Black Sand Hotel; aksturinn tekur um 4 klukkustundir í hvora átt. Það er drjúgur tími í bíl, en á móti kemur að þú ekur fram hjá stórfenglegum jöklum og mosavöxnum hraunbreiðum á leiðinni austur eftir hringveginum.

        Þetta ísjakaprýdda lón er eitt það fallegasta á landinu og á sumrin eru bátsferðir góð leið til að komast nær, og stundum sjást selir í vatninu. Á Demantsströndinni skammt frá skola Atlantshafsöldurnar sumum jakanna aftur upp á svarta sandinn þar sem þeir bráðna hægt og rólega.

        Aðeins nær, en ekki síður töfrandi, er eitt aðgengilegasta og fegursta gljúfur Íslands: Fjaðrárgljúfur. Það er stundum kallað Justin Bieber gljúfrið því söngvarinn tók eitt sinn upp myndband þar. Mosavaxnir bergranar sem fléttast saman, þverhníptir veggir og ótrúlega lítil áin gera þetta að yndislegum stað fyrir göngutúr.

        Tignarlegir jöklar Íslands: ómissandi upplifun við suðurströndina

        Hvort þú kýst að aka alla leið að Jökulsárlóni og til baka eða snúa við í Vík ræðst líklega af nokkrum þáttum. Sá fyrsti er árstíminn, sem hefur áhrif á hversu mikillar dagsbirtu þú getur vænst. Veðrið getur líka spilað inn í, þó að aðstæður breytist hratt, svo jafnvel þótt rigni í Vík er engin ástæða til að gera ráð fyrir sama veðri austar.

        Hvað sem því líður er nóg af útsýnisstöðum og afþreyingu í og við Vík, ekki síst vegna nálægðarinnar við Mýrdalsjökul sem gnæfir yfir bænum. Þetta er frábær staður ef þig hefur dreymt um að stíga inn í íshelli; hér er það yfirleitt hægt í skipulagðri ferð allt árið, en leiðsögufyrirtæki á staðnum veita nánari upplýsingar.

        Jöklaganga er líka möguleiki. Vegna áhættunnar er hún aðeins möguleg með reyndum og réttindamiklum leiðsögumanni. En fyrir ævintýragjarnt ferðafólk er tækifærið til að þræða ójafnt yfirborð jökulsins og gægjast ofan í ísbláar sprungur ógleymanleg leið til að kynnast einhverju stórbrotnasta landslagi Íslands.

        Eða komdu adrenalíninu af stað í vélsleðaferð yfir Mýrdalsjökul. Það er skemmtileg leið til að fara yfir stærra svæði en hægt væri fótgangandi. Þegar staldrað er við bendir leiðsögumaðurinn á það markverðasta og gefur þér tíma til að drekka í þig ótrúlegt útsýnið.

        Báða dagana þarftu að sætta þig við að sjá ekki allt, en þú sérð samt ógrynni af mögnuðum stöðum. Með því að gista á Black Sand Hotel ertu í návígi við þessa tvo stórbrotnu landshluta og tryggir þér eftirminnilega ferð og sögur sem þig mun langa að deila með vinum og fjölskyldu heima. Og þegar þig langar að sjá meira (sem við erum viss um að gerist) tökum við á móti þér aftur í aðra ferð sem verður alveg jafn skemmtileg.