Svona velurðu hótel á suðurströnd Íslands: Heildarleiðarvísir
Framboðið af hótelum á suðurströnd Íslands er orðið það mikið að valið getur virst yfirþyrmandi. Hvert hótel býður upp á ólíka staðsetningu, andrúmsloft og aðstöðu. Og rétta valið fer eftir því hvernig þú ætlar að ferðast um svæðið. Vel valið hótel styttir aksturinn og hjálpar þér að hvílast vel eftir langan dag af ævintýrum.
Ertu til í að finna fullkomna bækistöð fyrir ferðina um suðurströndina? Þessi leiðarvísir fer yfir mikilvægustu atriðin sem gott er að skoða áður en þú bókar gistingu.
1. Ákveddu hversu stóran hluta suðurstrandarinnar þú vilt skoða
Áður en þú bókar hótel skaltu ákveða hversu stóran hluta suðurstrandarinnar þú ætlar að skoða. Ferðaáætlunin um Suðurland hjálpar þér að finna besta gististaðinn.
Suðurströndin nær yfir stórt svæði. Margir ferðalangar leggja af stað frá Reykjavík og aka austur að þekktum stöðum eins og Seljalandsfossi, Skógafossi, Reynisfjöru og Vík. Sumir fara alla leið að Svartifossi, Demantaströndinni og Jökulsárlóni.
Þessir staðir liggja alls ekki allir þétt saman. Hótel sem hentar vel fyrir stutta ferð er því ekki endilega besti kosturinn fyrir lengri hringvegarferð.
Spurðu þig eftirfarandi spurninga:
Hvaða staðir eru efstir á óskalistanum?
Ertu í dagsferð eða ætlarðu að dvelja í nokkra daga?
Ætlarðu að aka allan syðri hluta hringvegarins?
Ef þú gistir aðeins eina eða tvær nætur skaltu velja hótel nálægt þeim stöðum sem þú vilt heimsækja. Í lengri ferðum getur borgað sig að gista á fleiri en einum stað, þannig styttist aksturinn og meiri tími gefst til að njóta hvers áfangastaðar.
2. Veldu staðsetningu út frá áhugamálunum
Veldu því næst hótel sem er nálægt því sem þú ætlar að gera. Þegar stutt er í ævintýrin er auðveldara að koma fleiru fyrir í ferðaáætluninni án þess að asinn taki yfir.
Hér sérðu hvar er best að gista á suðurströndinni eftir áhugasviði:
Fossaferðir: Gistu vestarlega á Suðurlandi ef þú vilt greiðan aðgang að þekktum fossum Suðurlands eins og Seljalandsfossi, Gljúfrabúa og Skógafossi.
Að skoða svörtu strendurnar: Ef þú ætlar í Reynisfjöru eða í fjórhjólaferð er gott að gista nálægt Vík og ströndinni þar í kring.
Jöklaævintýri: Gistu austar ef þú ætlar að Jökulsárlóni eða í jöklagöngur og íshellaferðir.
Dýralíf: Ef lundaskoðun heillar skaltu velja hótel nálægt Dyrhólaey eða Vestmannaeyjum.
Slökun í náttúrunni: Ef þú vilt rólegri takt skaltu leita að friðsælu athvarfi við ströndina í Sveitarfélaginu Ölfusi.
3. Hugaðu að samgöngum
Það hvernig þú ætlar að komast á milli hefur líka áhrif á hvaða hótel hentar þér. Flestir skoða suðurströndina á bílaleigubíl, en almenningssamgöngur og skipulagðar ferðir standa einnig til boða.
Ef þú ert á bílaleigubíl skaltu leita að hóteli á suðurströndinni sem býður upp á:
Ókeypis bílastæði
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Gott aðgengi að vegum að vetri til
Greiða leið frá hringveginum
Hæfilegan akstur að helstu áfangastöðum
Ef þú ert ekki á bíl skaltu skoða hótel á suðurströndinni sem:
Er nálægt biðstöðvum eða þeim stöðum þar sem ferðaþjónustur sækja farþega
Býður upp á flugvallar- eða skutluakstur ef á þarf að halda
Getur aðstoðað við bókanir á ferðum og samgöngum á svæðinu
Hótel sem passar við samgönguáform þín gerir alla skoðunarferð um suðurströndina einfaldari.
4. Settu þér fjárhagsramma
Verðið skiptir máli, en það ætti ekki að vera eini mælikvarðinn. Ísland getur verið dýr áfangastaður og hótelverð er breytilegt eftir árstíð, staðsetningu og þjónustustigi.
Þegar þú berð saman verð skaltu horfa á heildarvirðið:
Er morgunverður innifalinn?
Er ókeypis bílastæði tryggt?
Býður hótelið upp á ókeypis þráðlaust net?
Eru herbergin nógu rúmgóð?
Er heilsulindarþjónusta á staðnum?
Sumum nægir einfalt herbergi. Aðrir vilja meiri þægindi eftir langa daga úti við.
Ef þú ætlar að verja mestum tíma í skoðunarferðir vega staðsetning og morgunverður líklega þyngst. Ef þú vilt afslappandi frí á Íslandi skiptir útsýnið, hönnunin, veitingarnar og vellíðunaraðstaðan þig kannski meira máli.
5. Skoðaðu herbergistegundirnar sem eru í boði
Rétta herbergið getur skipt sköpum, sérstaklega ef þú ferðast með fjölskyldu, vinum eða hópi. Athugaðu fyrir bókun hvort hótelið bjóði upp á herbergistegundir sem passa við þínar þarfir.
Einn á ferð vill kannski einfalt og þægilegt herbergi með góðu neti og stutt í veitingar. Pör kjósa gjarnan herbergi með sjávarútsýni, stærra rúm eða kyrrláta umgjörð. Fjölskyldur gætu þurft aukapláss, barnarúm eða samliggjandi herbergi. Hópar vilja oft nokkur herbergi nálægt hver öðru eða sameiginleg rými.
Þegar þú skoðar kostina skaltu líka bera saman:
Stærð herbergja
Uppröðun rúma
Samliggjandi herbergi
Framboð á aukarúmum og barnarúmum
Ef þú gistir í nokkrar nætur verða þægindin enn mikilvægari. Rúmgott og vel búið herbergi auðveldar þér að slaka á og hlaða batteríin eftir hvern dag á suðurströndinni.
6. Berðu saman aðstöðu og þjónustu
Góð aðstaða og þjónusta gera dvölina þægilegri, sérstaklega á bílferð um suðurströndina. Suðurströndin er falleg, en ferðadagarnir geta orðið langir og lýjandi. Þú gætir varið klukkustundum í akstur, gönguferðir, myndatökur eða útivistarferðir.
Leitaðu að aðstöðu á borð við:
Hrein og þægileg rúm
Baðherbergi með heitri sturtu
Kaffi- og teaðstöðu
Skrifborð eða setuaðstöðu
Ókeypis háhraðanet
Flatskjá með gervihnattastöðvum
Heilsulind eða vellíðunaraðstöðu
Aðgang að þvottaaðstöðu
Þjónustan er ekki síður mikilvæg, einkum ef þú dvelur í nokkra daga á suðurströndinni. Athugaðu hvort hótelið bjóði upp á:
Sjálfsinnritun
Farangursgeymslu
Dagleg þrif
Aðstoð við bókun ferða
Gestaþjónustu allan sólarhringinn
Þessi þjónusta sparar tíma og einfaldar ferðalagið. Hótel sem aðstoðar við ferðabókanir getur til dæmis útvegað jöklagöngur, hestaferðir eða norðurljósaferðir. Farangursgeymsla kemur sér líka vel ef þú mætir fyrir innritun eða vilt skoða þig um eftir útritun.
7. Metdu aðgengi og fjölskylduvænleika
Hótelið á að virka fyrir alla í hópnum. Aðgengi og fjölskylduvænar lausnir skipta sérstaklega miklu máli ef þú ferðast með börn, eldra fólk eða gesti sem eiga erfitt um hreyfingu.
Athugaðu fyrir bókun hvort hótelið bjóði upp á:
Lyftur
Aðgengileg herbergi
Þrepalausan inngang
Aðgengileg bílastæði
Sturtur með innangengu
Barnarúm eða vöggur
Barnastóla
Ef aðgengi er ófrávíkjanleg krafa skaltu hafa beint samband við hótelið áður en þú bókar. Það litla skref kemur í veg fyrir óvæntar uppákomur og gerir dvölina áhyggjulausari.
8. Kynntu þér veitingamöguleikana
Veitingar vega þungt þegar hótel á suðurströndinni er valið. Í dreifbýli getur verið langt í næsta veitingastað og opnunartímar styttri en þú átt að venjast. Eftir langan akstur eða heilan dag úti við munar miklu að hafa góðar veitingar innan seilingar.
Leitaðu að hóteli á suðurströndinni sem býður upp á:
Veitingastað á staðnum
Morgunverðarhlaðborð
Bar eða setustofu
Hótel án veitingastaðar getur samt hentað vel ef veitingastaðir eða kaffihús eru í nágrenninu.
Ef þú ert með sérþarfir í mataræði er gott að skoða matseðilinn fyrir bókun. Mörg íslensk hótel bjóða upp á grænmetisrétti og rétti fyrir fólk með ofnæmi, en best er samt að fá það staðfest. Fjölskyldur ættu líka að kanna hvort barnamatseðill og sveigjanlegir matmálstímar séu í boði.
9. Hugsaðu um árstíðina
Rétta hótelið fyrir ferðina getur líka farið eftir því hvenær þú kemur. Hver árstíð býður upp á sína upplifun á Íslandi og getur haft áhrif á hvar best er að gista.
Sumar (júní til ágúst)
Á sumrin eru dagarnir langir. Þú getur ekið lengur fram eftir, komið fleiri viðkomustöðum fyrir á einum degi og notið grænna landslagsins, fossanna og strandarinnar. Sumarið er líka vinsælasti ferðatíminn og hótelin fyllast snemma. Ef þig langar í ákveðna herbergistegund eða staðsetningu skaltu bóka tímanlega.
Vetur (nóvember til mars)
Á veturna eru dagarnir stuttir og veðrið getur sett strik í aksturinn. Þá skiptir enn meira máli að gista nálægt stöðunum sem þú vilt heimsækja. Þá er líka gott að velja hótel með veitingastað svo þú þurfir ekki að aka langt í myrkri.
Veturinn er jafnframt góður tími til að njóta norðurljósanna á Íslandi, þegar himinninn er dimmur og heiður. Kyrrlátt hótel fjarri mikilli ljósmengun bætir upplifunina, þó að norðurljósin láti aldrei bóka sig fyrirfram.
Vor og haust
Vor og haust geta verið góðir kostir fyrir þau sem vilja færri ferðamenn. Veðrið á Suðurlandi getur enn verið óútreiknanlegt, en þessar árstíðir bjóða oft upp á fínt jafnvægi milli dagsbirtu, landslags og lauss framboðs.
Stuttur samanburður: Á sumrin skipta staðsetning og laust framboð oftast mestu máli. Á veturna vega þægindi, veitingar, aðgengi að vegum og aðstoð við ferðabókanir enn þyngra.
Hvers vegna Black Sand Hotel er frábær bækistöð á suðurströndinni
Ertu að leita að hóteli á suðurströndinni sem uppfyllir flest af því sem farið er yfir í þessum leiðarvísi? Black Sand Hotel er einn góður kostur. Hótelið stendur í Ölfusi og sameinar friðsæla staðsetningu við ströndina og nútímaþægindi. Og það sem mestu skiptir: þaðan er stutt í helstu perlur Suðurlands.
Hvað gerir Black Sand Hotel að rétta valinu?
Friðsæl staðsetning með greiðu aðgengi
Um 40 mínútna akstur frá Reykjavík
Stuttur akstur að helstu áfangastöðum Suðurlands
Stutt í brimbrettasvæðið við Þorlákshöfn og þjónustuna á Selfossi
Stendur við kyrrláta svarta sandströnd í Ölfusi
Herbergi fyrir alla ferðalanga
79 herbergi og svítur í skandinavískum anda
Herbergistegundir frá Classic Twin upp í Signature Suite
Aðgengileg herbergi með innangengum sturtum fyrir gesti sem eiga erfitt um hreyfingu
Fjölskylduvæn samliggjandi herbergi með svefnsófum og barnarúmum (sé þess óskað)
Gólfsíðir gluggar með útsýni yfir Atlantshafið eða Ölfusá
Þægileg aðstaða
Ókeypis þráðlaust net um allt hótelið
Morgunverðarhlaðborð innifalið í hverri dvöl
Snjallsjónvörp, hágæða DUX rúm og kaffi og te á herbergjum
Heilsulind opnar síðsumars 2026
Veitingar á staðnum
ÓMUR veitingastaður og bar á hótelinu
Norrænn matseðill eftir Huga Rafn Stefánsson matreiðslumeistara
Morgunverður, kvöldverður og barþjónusta alla daga
Vönduð gestaþjónusta
Gestaþjónusta allan sólarhringinn
Herbergisþjónusta og dagleg þrif
Einkaakstur í boði sé þess óskað
Hvort sem þú ferðast með fjölskyldunni, vinum eða makanum býður Black Sand Hotel upp á herbergi sem henta dvölinni. Staðsetningin og aðstaðan gera það einfalt og þægilegt að skoða suðurströndina.
Finndu rétta hótelið fyrir ferðina um suðurströndina
Að velja hótel á suðurströnd Íslands byrjar á því að finna það sem passar við ferðaáætlunina, ferðastílinn og budduna. Skoðaðu staðsetningu, samgöngur, herbergistegundir, aðstöðu og þjónustu áður en þú bókar. Hugsaðu um hversu langt þú vilt aka á degi hverjum og hvaða staðir eru í forgangi.
Vel valin gisting, eins og Black Sand Hotel, gerir þér auðveldara að skoða svæðið á þínum eigin hraða. Með hentugri staðsetningu og þægilegri aðstöðu ferð þú minni tíma í skipulagningu og meiri tíma í að njóta stórbrotinnar náttúru Íslands.
Algengar spurningar
Hvar er best að gista á suðurströndinni?
Besti gististaðurinn á suðurströndinni fer eftir ferðaáætluninni og áhugamálunum. Gistu vestarlega á Suðurlandi fyrir fossana, nálægt Vík fyrir svörtu strendurnar eða austar fyrir jöklaævintýrin.
Hversu marga daga ætti ég að verja á suðurströndinni?
Gerðu ráð fyrir að minnsta kosti 2–3 dögum til að sjá helstu staði suðurstrandarinnar án asa. Bættu við degi ef þú vilt heimsækja Jökulsárlón eða fara í jöklagöngu eða íshellaferð.
Þarf ég bíl til að gista á suðurströndinni?
Bílaleigubíll er einfaldasta leiðin til að skoða suðurströndina því hann gefur mestan sveigjanleika. Ef þú ætlar ekki að aka sjálf(ur) skaltu velja hótel nálægt biðstöðvum eða stöðum þar sem ferðaþjónustur sækja farþega.
Hvaða mánuður er bestur til að heimsækja suðurströndina?
Besti tíminn til að heimsækja suðurströndina fer eftir áhugamálunum. Komdu á sumrin fyrir langa björtu dagana og bílferðirnar. Eða á veturna fyrir snævi þakið landslag, íshellaferðir og norðurljósin.
Með hve löngum fyrirvara ætti ég að bóka hótel á suðurströndinni?
Bókaðu hótel á Suðurlandi með margra mánaða fyrirvara ef þú kemur á sumrin eða öðrum annatímum. Á veturna er framboðið yfirleitt rýmra, en það borgar sig samt að bóka snemma til að hafa úr sem flestum hótelum og herbergistegundum að velja.
Eru fjölskylduvæn hótel á suðurströndinni?
Já, mörg hótel á suðurströndinni taka vel á móti fjölskyldum. Black Sand Hotel býður til dæmis upp á samliggjandi fjölskylduherbergi, barnarúm, veitingar á staðnum og stutt er í helstu áfangastaði.
Get ég séð norðurljósin frá hótelum á suðurströndinni?
Já, mörg hótel á suðurströndinni, eins og Black Sand Hotel, bjóða upp á góðar aðstæður til norðurljósaskoðunar frá september til apríl. Veldu hótel fjarri björtum borgarljósum, en mundu að norðurljósin fara alltaf eftir veðri og virkni sólar.