Hvernig á að klæða sig fyrir norðurljósaferð
Strjálbýlið, aðgengilegar sveitir og lítil ljósmengun gera Ísland að kjörnum stað til norðurljósaskoðunar. Að gista á Black Sand Hotel er skynsamlegt val í því tilliti. En hvar sem þú gistir fer norðurljósatímabilið oft saman við erfiðasta veðrið. Kuldi og vindur þurfa þó ekki að eyðileggja ferðina, en þú þarft að undirbúa þig vel svo þér líði vel allt kvöldið. Í þessari grein förum við yfir það sem gott er að hafa í huga áður en lagt er af stað og skoðum hvernig best er að klæða sig fyrir norðurljósaferð.
Það sem þú þarft að takast á við
Norðurljósatímabilið á Íslandi nær yfirleitt frá því seint í ágúst og fram í miðjan apríl. Margir ferðalangar tvinna norðurljósaskoðun saman við vetrarferð, enda gefst þá einnig færi á árstíðabundnum upplifunum á borð við heimsóknir í íshella. Því nær sem dregur miðjum vetri, því fyrr dimmir, og það lengir mögulegan skoðunarglugga.
Oft þarf hins vegar að bíða lengi eftir að norðurljósin láti sjá sig, stundum í nokkrar klukkustundir. Á þessum árstíma getur hitinn farið niður undir frostmark og þar sem þú hefur líklega haldið út fyrir byggð gæti farið svo að þú standir úti tímunum saman án þess að skjól sé í næsta nágrenni.
Vindkæling getur gert það að verkum að kuldinn bítur meira en hitamælirinn segir til um, svo taktu hana með í reikninginn. Þú gætir líka þurft að búa þig undir hálku á stígum og velta vandlega fyrir þér hvort skóbúnaðurinn ráði við aðstæður. Hugsaðu einnig út í hvernig þú ætlar að bera og komast í búnaðinn sem þú tekur með til að mynda norðurljósin.
Að finna út hverju á að klæðast
Eitt það mikilvægasta við klæðnað fyrir norðurljósaskoðun er að hugsa um hvernig þú heldur á þér hita en forðast um leið svita, því sviti kælir húðina og það viltu alls ekki. Það skiptir máli að klæða sig í lögum, en lögin þurfa að vera rétt valin.
Þótt fjölmargar sérverslanir í Reykjavík bjóði allt sem til þarf er ekki alltaf hentugt að fara þangað, sérstaklega ef þú vilt komast sem fyrst á suðurströndina. Fatnaður er líka gjarnan dýr á Íslandi og oft borgar sig að kaupa það sem vantar fyrirfram og taka með sér.
Fatnaðurinn sem þú þarft
Innstu lögin
Byrjaðu innst og veldu hlý undirföt. Flestir velja grunnlög úr merínóull eða gerviefnum sem eru hönnuð til að einangra vel. Þú þarft síðar nærbuxur sem falla þétt að, athugaðu líka síddina ef þú ert í hærri kantinum, og að auki langerma bol.
Bættu svo við flíkum sem hjálpa til við að halda dýrmætum hitanum inni. Skynsamlegt er að forðast fyrirferðarmiklar flíkur sem hefta hreyfingar. Flíspeysur eru góður kostur, léttar en hlýjar. Ef þú vilt halda í hefðina má auðvitað skipta einni þeirra út fyrir lopapeysu, íslensku ullarpeysuna sem sést hvarvetna.
Ysta lagið
Ysta lagið þarf að vera bæði vindhelt og vatnshelt. Þú hefur auðvitað kíkt á veðurspána áður en haldið var af stað í norðurljósaleitina og lagt upp með von um heiðskíran himin. Íslenskt veður er hins vegar alræmt fyrir að skipta um skap og aðstæður geta breyst hratt, svo ekki er hægt að útiloka skúr þegar líður á kvöldið.
Gakktu úr skugga um að flíkurnar í ysta laginu séu vandaðar og standi undir því sem þeim er lofað. Vatnsheldar buxur eru ekki síður mikilvægar en vatnsheld úlpa. Mundu að í roki er lítið gagn í regnhlíf, svo veldu yfirhöfn með hettu sem hægt er að reima þétt að andlitinu.
Útlimir og andlit
Það er lykilatriði að verja andlit, hendur og fætur. Í kulda tapast varmi um höfuðið, svo hafðu með þér húfu sem situr þétt og vel. Notaðu trefil eða buff til að halda hálsinum hlýjum; ef þú velur trefil skaltu vefja honum tryggilega um þig.
Hanskar þurfa að gegna tvöföldu hlutverki: þeir eiga að halda höndunum heitum en jafnframt að vera þannig að auðvelt sé að smeygja sér úr þeim þegar á þarf að halda, til dæmis þegar stilla þarf myndavélina. Það getur hjálpað að vera í þynnri hönskum innan undir sem mega vera áfram á höndunum, eða velja hanska með leiðandi fingurgómum svo hægt sé að nota snertiskjá.
Skóbúnaður
Fæturnir mega ekki verða útundan. Ef þú stendur jafnvel klukkustundum saman á köldu og óhreinsuðu undirlagi leitar kuldinn upp í gegnum sólana, svo veldu skó með þykkum og grófum sóla. Þykkir ullarsokkar eru annað sem má ekki vanta; gættu þess þó að þeir séu ekki svo þröngir að þeir þrengi að.
Ef hálka er úti koma mannbroddar sér afar vel. Þeir smellast utan um sóla skónna og gefa aukið grip á sleipu undirlagi. Þá má kaupa ódýrt á netinu, en ef þú stendur uppi broddalaus fást einfaldir broddar í matvöruverslunum yfir vetrartímann; þeir duga ágætlega ef ekkert betra býðst.
Vasar og töskur
Annað sem vert er að hugsa um er taskan sem þú berð, sem og fjöldi og staðsetning vasa, sérstaklega ef þú ætlar að mynda norðurljósin í ferðinni, og hver vill ekki eiga augnablikið á mynd? Gott er að velta fyrir sér hvernig þú kemur búnaðinum á staðinn og til baka, en líka hvernig þú nærð í hann yfir kvöldið.
Auka minniskort, aukarafhlöður, hleðslubankar og snúrur þurfa að vera aðgengileg en um leið varin fyrir kuldanum. Lítið vasaljós kemur sér svo einstaklega vel þegar athuga þarf stillingar á myndavélinni eða rata eftir ójöfnum stígum í myrkrinu.
Innri vasar eru frábærir til að halda hlutum heitum, en gættu þess að ekki sé of mikið mál að komast í þá gegnum ytri lögin. Of margar smellur og stífir eða faldir rennilásar reyna á þolinmæðina, þetta er jafnvægislist. Þú getur líka notað einangrandi hulstur eða jafnvel auka handhitapoka ef þú vilt frekar halda þig við ytri vasa.
Einnig má íhuga að horfa á norðurljósin frá gistingunni sjálfri, eða að minnsta kosti skammt frá henni. Þá er hægt að skjótast inn til að hlýja sér eða sækja það sem vantar. Með því að velja hótel í sveit, eins og Black Sand Hotel, ertu í kjöraðstöðu til að upplifa norðurljósin í þægindum án þess að þurfa að fara langt.
Eftir sem áður er nauðsynlegt að klæða sig rétt fyrir útiveruna, svo við mælum með að þú fylgir þessum ráðum til að norðurljósastundin verði eins ánægjuleg og hugsast getur.