Athugið að framkvæmdir standa enn yfir við hótelið og spa-svæðið vegna tafa. Gert er ráð fyrir að spa-svæðið opni síðla árs 2026

Allur fróðleikur / Ferðaráð

Svona nærðu ógleymanlegum brúðkaupsmyndum á suðurströnd Íslands

Svona nærðu ógleymanlegum brúðkaupsmyndum á suðurströnd Íslands

Suðurströnd Íslands er einn af mögnuðustu stöðum í heimi fyrir brúðkaupsljósmyndun. Svartar strendur, kraftmiklir fossar, hraunbreiður og víður himinn skapa dramatíska umgjörð sem er í senn hrá og innileg. Fyrir pör sem skipuleggja brúðkaup eða litla athöfn í kyrrþey býður svæðið upp á óteljandi tækifæri til að fanga merkingarbærar og ógleymanlegar myndir.

Hvort sem þú ert að skipuleggja heilan brúðkaupsdag eða rólega myndatöku í kyrrþey skiptir vönduð skipulagning öllu máli. Því betur sem þú þekkir landslagið, þeim mun auðveldara verður að ná sannarlega hrífandi brúðkaupsmyndum.

Hvernig finnur þú bestu tökustaðina á suðurströndinni?

Að finna réttu tökustaðina snýst síður um að heimsækja sem flest kennileiti. Það snýst frekar um að velja staði sem passa við tímaáætlunina, ferðatímabilið og það sem þið treystið ykkur í. Suðurströndin teygir sig yfir hundruð kílómetra og veðrið getur breyst hratt.

Þegar þú velur tökustaði fyrir brúðkaupsmyndir á Suðurlandi er gott að hafa í huga:

  • Aksturstíma milli staða, sérstaklega að vetri til

  • Aðgengi og öryggi, einkum við kletta og sjó

  • Birtuskilyrði á ólíkum tímum dags

  • Fjölda gesta, sem getur verið mjög breytilegur eftir árstíðum

Vandað staðarval heldur ferðalaginu einföldu og gefur meiri tíma í sjálfa myndatökuna. Þannig verður upplifunin á suðurströndinni rólegri og ánægjulegri.

Brúðhjón leiðast eftir svartri sandströnd á Suðurlandi.

Hvaða staðir á suðurströndinni henta best fyrir brúðkaupsmyndatökur?

Hér að neðan eru nokkrir af þekktustu og myndrænustu stöðunum fyrir athöfn í kyrrþey eða brúðkaup á Íslandi, við suðurströndina.

1. Skógafoss

Skógafoss er einn kraftmesti og glæsilegasti fossinn á suðurströndinni. Breitt vatnsfallið skapar sterka tilfinningu fyrir stærðarhlutföllum og hentar því einstaklega vel fyrir dramatískar brúðkaupsmyndir. Á sólríkum dögum myndar úðinn oft regnboga sem gefa myndunum mjúkan, næstum draumkenndan blæ. Auðvelt er að komast að fossinum og hann hentar því vel pörum sem vilja stórbrotið landslag án langrar göngu.

Skógafoss með þéttum úða við fossrótina á Suðurlandi.

2. Seljalandsfoss

Við Seljalandsfoss gefst það sjaldgæfa tækifæri að ganga bak við fossinn, sem skapar lagskiptar myndbyggingar og mjúka, síaða birtu. Staðurinn nýtur sín sérstaklega vel snemma morguns eða seint á kvöldin, þegar færri gestir eru á ferli. Stöðug hreyfing vatnsins gefur brúðkaupsmyndunum dýpt og andrúmsloft.

3. Kvernufoss

Kvernufoss leynist skammt frá Skógum og þar ríkir meiri nánd en við stærri fossana í grenndinni. Stutt ganga liggur inn í þröngt gil þar sem klettaveggir og gróður ramma fossinn inn. Þessi kyrrláta umgjörð hentar vel fyrir tilfinningaríkar myndir með sterka frásögn og einkastundir brúðhjóna.

Kvernufoss í þröngu gili á Suðurlandi.

4. Gljúfrabúi

Gljúfrabúi er að hluta falinn inni í þröngu gljúfri og yfir staðnum hvílir afskekkt ævintýrastemning. Birtan endurkastast mjúklega af klettunum í kring og skapar náttúrulegan ljóma. Þetta er kjörinn staður fyrir pör sem vilja fara örlítið út fyrir alfaraleið án þess að ferðast langt.

5. Reynisfjara

Reynisfjara er ein þekktasta svarta sandströnd Íslands. Stuðlaberg, hraunmyndanir og kröftugt brim skapa sláandi bakgrunn fyrir brúðkaupsmyndir. Aðstæður breytast hratt á þessum stað og því halda ljósmyndarar sig við víðar myndbyggingar og örugga fjarlægð frá flæðarmálinu.

Reynisfjara með stuðlabergi og Reynisdröngum á Suðurlandi.

6. Vík í Mýrdal & Víkurfjara

Ströndin við Vík býður upp á langar svartar fjörur, opinn himin og tilkomumikið útsýni yfir hafið. Víkurfjara er oft rólegri en Reynisfjara í næsta nágrenni og því auðveldara að ná afslöppuðum og eðlilegum brúðkaupsmyndum þar. Svæðið nýtur sín sérstaklega vel við sólarupprás og sólsetur.

7. Dyrhólaey

Dyrhólaey rís hátt yfir ströndina og þaðan er víðáttumikið útsýni yfir hafið og landslagið í kring. Af bjargbrúninni má ná víðum, kvikmyndalegum myndum sem sýna stærðarhlutföll suðurstrandarinnar. Aðgangur er takmarkaður hluta úr ári en þegar opið er telst þetta einn gjöfulasti tökustaður svæðisins.

Dyrhólaey séð úr lofti á Suðurlandi.

8. Sólheimajökull

Sólheimajökull býður upp á hrjúfa áferð, djúpar sprungur og sterka tilfinningu fyrir stærð. Brúðkaupsmyndataka hér er ævintýraleg og með djúpar rætur í íslenskri náttúru. Af öryggisástæðum er eindregið mælt með því að fara á jökulinn með reyndum leiðsögumanni.

9. Jökulsárlón

Jökulsárlón er eins og úr öðrum heimi, með ísjaka sem líða hægt yfir lónið. Birtan endurkastast af ísnum á síbreytilegan hátt og skapar einstakar myndbyggingar allan daginn. Vegna vegalengdarinnar hentar staðurinn best fyrir athafnir í kyrrþey eða brúðkaupsmyndatökur sem dreifast á fleiri daga.

Bátur siglir milli fljótandi ísjaka á Jökulsárlóni á Suðurlandi.

10. Demantaströndin

Rétt handan vegarins við jökullónið hvíla ísbrot á svörtum sandi eins og dreifðir kristallar. Andstæður íssins og eldfjallasandsins skapa hreinar, mínímalískar myndir. Demantaströndin fer einstaklega vel saman við heimsókn að Jökulsárlóni.

Að vinna með íslenskum brúðkaupsljósmyndurum

Íslenskir brúðkaupsljósmyndarar hafa meira fram að færa en tæknikunnáttu. Þeir vita hvernig birtan breytist yfir daginn, hvernig veðurkerfin ganga eftir suðurströndinni og hvernig unnið er á öruggan hátt í opnu og berskjölduðu landslagi.

Að vinna með brúðkaupsljósmyndurum sem starfa á Íslandi þýðir einnig:

  • Tímaáætlun sem lagar sig að veðri og birtu

  • Djúpa þekkingu á tökustöðum og aðkomuleiðum

  • Ríka áherslu á öryggi við kletta, jökla og svartar strendur

  • Vana af því að vinna í vindi, rigningu og kulda

    Þessi reynsla er sérstaklega dýrmæt þegar brúðkaupsmyndir eru teknar á afskekktum eða berskjölduðum stöðum við suðurströndina.

    Svona seturðu saman fullkomna tímaáætlun fyrir brúðkaupsmyndatöku á Íslandi

    Raunhæf tímaáætlun dregur úr streitu og leyfir myndatökunni að flæða á eðlilegan hátt. Á suðurströndinni er sveigjanleiki lykilatriði.

    Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú skipuleggur daginn:

    • Veldu færri tökustaði svo meiri tími gefist á hverjum stað

    • Viljir þú fleiri tökustaði skaltu dreifa þeim á fleiri daga

    • Gerðu ráð fyrir svigrúmi vegna breytilegs veðurs og færðar

    • Skipuleggðu portrettmyndir út frá náttúrulegri birtu frekar en föstum tímasetningum

    • Skelltu þér í heita laug eða heilsulind milli staða til að hlýja þér og hvílast

    • Skildu eftir rými til að hægja á og njóta upplifunarinnar

      Brúðhjón leiðast utandyra.

      Gististaðurinn mótar líka tímaáætlunina. Með því að velja gistingu nálægt helstu tökustöðunum styttist aksturinn og sveigjanleikinn yfir daginn eykst.

      Gisting við suðurströndina, eins og Black Sand Hotel, býður upp á rólegt athvarf við ströndina. Þægileg herbergi í skandinavískum anda og hentug staðsetning gera hótelið að kjörnum stað til að hægja á og safna kröftum milli myndatökulota. Það nýtist líka vel sem bækistöð fyrir ferðalag um Suðurland eftir stóra daginn.

      Nauðsynlegur búnaður og pökkunarráð fyrir glæsilegar brúðkaupsmyndir

      Góður undirbúningur skiptir sjáanlega máli, ekki síst í síbreytilegu íslensku veðri. Hér er stuttur pökkunarlisti fyrir brúðkaup á Íslandi og myndatökuna.

      Fyrir brúðhjónin:

      • Hlý lög af fatnaði og vindheldar yfirhafnir

      • Vatnsheldir skór eða traustir gönguskór fyrir ójafnt undirlag

      • Hlutlausir jarðtónar sem njóta sín fallega á móti svörtum ströndum og hraunbreiðum

        Fyrir ljósmyndara:

        • Þrífótur fyrir stöðugar myndir

        • Linsuklútar vegna úða og rigningar

        • Veðurhlífar fyrir myndavélarnar

        • Varabúnaður fyrir breytilegar aðstæður

        • Aukarafhlöður (þær tæmast hraðar í kulda)

          Þegar öllum líður vel er auðveldara að vera til staðar í augnablikinu, og myndirnar verða eðlilegri og afslappaðri.

          Brúðhjón stilla sér upp í Reynisfjöru á Suðurlandi.

          Fangaðu draumabrúðkaupsmyndirnar þínar

          Að ná ógleymanlegum brúðkaupsmyndum á suðurströndinni snýst um að taka umhverfinu opnum örmum. Vindurinn, breytileg birtan og stórbrotið landslagið eru hluti af upplifuninni. Með vandaðri skipulagningu og réttu tökustöðunum geta pör skapað myndir sem eru tímalausar og fullar af tilfinningu. Samstarf við reynda brúðkaupsljósmyndara tryggir að íslensk náttúra fái að njóta sín í hverjum einasta ramma.

          Algengar spurningar um brúðkaupsmyndatökur á Íslandi

          Þurfum við leyfi fyrir brúðkaupsmyndatöku á Íslandi?

          Á flestum stöðum sem eru opnir almenningi á Íslandi þarf ekki leyfi fyrir brúðkaupsmyndatöku. Á sumum friðlýstum svæðum eða í einkalandi getur þó þurft skriflegt leyfi eða greitt leyfi.

          Hvaða árstími er bestur fyrir brúðkaupsmyndatöku á suðurströndinni?

          Frá því síðla vors og fram á haust er aðgengið auðveldara og dagsbirtan lengri. Veturinn býður upp á dulúðuga birtu, færri gesti, möguleika á að sjá norðurljósin og dramatískara andrúmsloft.

          Hvaða tími dags er bestur fyrir brúðarmyndir á Íslandi?

          Snemma morguns og seint á kvöldin er birtan mýkst og hentar brúðkaupsmyndum einstaklega vel. Á sumrin gefa löngu björtu dagarnir mikinn sveigjanleika í tímasetningum.

          Með hve löngum fyrirvara ættum við að bóka brúðkaupsljósmyndara á Íslandi?

          Margir íslenskir brúðkaupsljósmyndarar eru bókaðir 6–12 mánuði fram í tímann, sérstaklega yfir sumarið. Mælt er eindregið með því að bóka snemma.

          Í hverju ættu brúðhjón að vera á brúðkaupsmyndum á Íslandi?

          Hlý lög, vindheldar yfirhafnir og skynsamlegur skóbúnaður eru nauðsynleg í brúðkaupsmyndatöku á Íslandi. Einföld snið njóta sín best í íslensku landslagi.