Af hverju Suðurland er besta bækistöðin til að skoða suðurströndina
Þegar Íslandsævintýri er skipulagt beinist athygli flestra ferðalanga að hinni frægu suðurströnd. Þessi stórbrotna vegslaufa hlykkjast meðfram Norður-Atlantshafinu, framhjá tignarlegum fossum, víðáttumiklum jöklum og sláandi svörtum söndum.
Eins og í öllum fríum getur vel valin heimahöfn skipt sköpum. Fyrir þau sem ætla að skoða ströndina er Suðurland kjörin bækistöð. Svæðið tengir Reykjavík við suðurstrandarleiðina sem teygir sig austur að Jökulsárlóni. Með því að gista hér ertu í fullkominni stöðu til að skoða bæði perlur Gullna hringsins og undur strandarinnar í suðri.
Hér er ástæðan fyrir því að Suðurland stendur upp úr þegar kemur að ferðaáætlun um suðurströndina.
1. Á Suðurlandi er óviðjafnanlegur þéttleiki frægra náttúruperla
Stór kostur við bækistöð á Suðurlandi er fjöldi heimsþekktra áfangastaða sem ná má til á einum degi. Svæðið liggur á lykilkrossgötum og setur þig í seilingarfjarlægð frá bæði Gullna hringnum og suðurströndinni.
Frá Black Sand Hotel í Ölfusi ertu vel í sveit sett(ur) fyrir skoðunarferðir um Suðurland. Þaðan er falleg, um það bil tveggja tíma akstursleið að helsta klasanum af frægum kennileitum suðurstrandarinnar. Vinsælustu perlurnar, þar á meðal Seljalandsfoss, Skógafoss, Dyrhólaey og svarta ströndin í Reynisfjöru, liggja allar þétt saman. Þess vegna er auðvelt að upplifa nokkra hápunkta á einum vel skipulögðum degi.
Á sama tíma liggur Gullni hringurinn rétt norðar. Þessi sígilda leið tengir þig við þrjú stórfengleg íslensk undur: þjóðgarðinn á Þingvöllum, Gullfoss og goshverinn Strokk.
2. Fallegar svartar sandstrendur, með gistingu skammt frá
Engin könnunarferð um suðurströnd Íslands er fullkomin án þess að upplifa hinar einkennandi svörtu sandstrendur. Þær eru mótaðar af öflugum eldvirknikröftum landsins og eru meðal áhrifamestu náttúrufyrirbæra Íslands. Með bækistöð á Suðurlandi geturðu heimsótt þessar svörtu strendur áreynslulaust.
Frægust þeirra er Reynisfjara. Þar mynda dökku sandarnir skarpar andstæður við hvítfyssandi öldur Atlantshafsins. Á göngu eftir ströndinni sérðu Reynisdranga rísa úr hafinu og há stuðlabergsþil í klettunum fyrir aftan þig. Landslag Reynisfjöru er eins og úr öðrum heimi og kvikmyndaáhugafólk kannast jafnvel við hana sem dulúðugan bakgrunn í uppáhaldsmyndunum sínum. Sjáðu ströndina bregða fyrir í Game of Thrones, Rogue One: A Star Wars Story og Star Trek: Into Darkness.
Lengra í austri er önnur eftirtektarverð svört strönd: Demantsströndin. Hún er hinum megin vegarins við Jökulsárlón og þakin glitrandi ísmolum sem skolast á land úr lóninu.
Fegurðin við bækistöð á Suðurlandi er að upplifunin endar ekki þegar þú yfirgefur áfangastaðinn. Eftir dag í dramatísku strandlandslagi snýrðu aftur á hótel með útsýni yfir Norður-Atlantshafið. Á Black Sand Hotel bíður til dæmis sama hafútsýnið þín, úr hlýju og notalegu herbergi.
3. Nokkrir af stórfenglegustu fossum landsins
Fossar Suðurlands eru hver öðrum tilkomumeiri. Hér hefurðu aðgang að því sem stundum er kallað „fossagöng“ suðurstrandarinnar, vegarkafla þar sem hver risinn tekur við af öðrum.
Seljalandsfoss er frægur fyrir göngustíginn sem liggur alveg á bak við vatnsflauminn. Þetta sjaldgæfa sjónarhorn gefur heillandi sýn á fossinn, sérstaklega við sólsetur. Aðeins 30 mínútum lengra eftir hringveginum er Skógafoss, 60 metra (197 feta) hár foss, þekktur fyrir kraft sinn og breidd. Á sólríkum dögum myndar úðinn regnboga yfir vatninu og bætir ævintýrablæ við hrikalegt landslagið.
Áttu tíma aflögu eftir aðalstoppin? Í göngufæri frá þessum risum leynast faldir fossar eins og Gljúfrabúi, sem kúrir inni í þröngri gjá skammt frá Seljalandsfossi. Sömuleiðis er Kvernufoss, minna þekktur foss sem einnig er hægt að ganga á bak við, rétt hjá Skógafossi.
4. Gnótt heitra lauga og jarðhitapotta
Útivera í heitu vatni er rammíslensk iðja og Suðurland er frábær staður til að njóta þessarar ástsælu hefðar. Þökk sé eldvirkninni sem kraumar undir yfirborðinu er þessi hluti suðurstrandarinnar sannkölluð miðstöð náttúrulegrar hlýju. Eftir dag í skoðunarferðum um suðurströndina er fátt betra en að láta líða úr sér í náttúrulega heitu vatni.
Rétt fyrir ofan Ölfusið liggur Hveragerði, oft kallað hverabær Íslands. Bærinn er þekktur fyrir sýnilega jarðhitavirkni og býður eina aðgengilegustu og upprunalegustu hveraupplifun landsins. Fyrir ævintýragjarnari ferðalanga er gönguleiðin inn í Reykjadal upplifun í sjálfri sér. Leiðin liggur um rjúkandi hveralandslag þar til komið er að volgu ánni í Reykjadal, þar sem heitt vatn rennur um fjöllin.
Eitt af því sérstaka við ána er að þú getur valið kjörhitastigið eftir því hvar þú ferð ofan í. Kaldara vatn er neðar í ánni en heitari kaflar ofar.
5. Upplifðu tignarlega jöklana í návígi
Stærstu verðlaunin fyrir aksturinn eftir suðurstrandarleiðinni? Að berja hina gríðarstóru jökla Íslands augum. Frá Suðurlandi geturðu upplifað þessi frosnu ferlíki í návígi.
Fyrir ævintýrafólk jafnast fátt á við jöklagöngu með leiðsögn á skriðjökli eins og Sólheimajökli. Þar stígurðu á ævafornan ísinn og kannar heim djúpra sprungna, blárra ísmyndana og víðáttumikils, glitrandi landslags. Þrátt fyrir framandi yfirbragð er þessi einstaka upplifun auðsótt dagsferð frá flestum bækistöðvum á Suðurlandi.
Lengra í austri liggur krúnudjásn suðurstrandarinnar: Jökulsárlón. Þetta djúpa, ískalda lón er fullt af borgarísjökum sem brotna úr Breiðamerkurjökli og reka hægt til sjávar. Frá bakkanum eða um borð í Zodiac-bát geturðu fylgst með skrúðgöngu ísjakanna líða yfir vatnið.
6. Óvænt ljúffeng íslensk matargerð, með fersku grænmeti úr héraði
Enn einn dásamlegur kostur við heimahöfn á Suðurlandi er matarsenan, sem kemur mörgum skemmtilega á óvart. Íslensk matargerð hefur að hefð snúist um sjávarfang og lambakjöt. Svæðið í kringum Ölfusið sker sig hins vegar úr fyrir eitthvert ferskasta grænmeti landsins.
Þökk sé miklum jarðhita á Suðurlandi hýsa bæir eins og Hveragerði víðáttumikil gróðurhús, hituð með jarðvarma. Þar eru ræktaðir ferskir tómatar, paprikur og gúrkur allt árið, grænmeti sem oft er erfitt að rækta utandyra í íslensku veðurfari. Aðgangur að hágæða hráefni gerir það að verkum að það er sannkölluð veisla að borða úti á Suðurlandi, enda leggja veitingastaðir áherslu á hráefni beint frá býli.
Þessi áhersla á hráefni úr héraði endurspeglast fullkomlega í veitingastað Black Sand Hotel. ÓMUR ber Ísland fram á diski: „ferskan fisk úr nálægum miðum, rótargrænmeti ræktað í eldfjallajarðvegi og brauð bakað á hverjum morgni.“
7. Tilvalið fyrir styttri ferðir, en auðvelt að framlengja eftir hringveginum
Viljirðu upplifa sem mest kanntu að meta sveigjanleikann sem Suðurland gefur ferðaáætluninni. Svæðið hentar jafn vel hvort sem þú hefur aðeins nokkra daga eða margar vikur til að ferðast um landið.
Fyrir styttri ferðir er sérstaklega þægilegt að gista í Ölfusinu. Þaðan eru aðeins um 40 mínútur í akstri til Reykjavíkur og um 75 mínútur á Keflavíkurflugvöll. Þannig fer dýrmætur skoðunartími ekki í súginn á veginum. Bækistöð á Suðurlandi gerir þér líka kleift að skoða Gullna hringinn og kennileiti suðurstrandarinnar án þess að skipta um gistingu á hverju kvöldi.
Fyrir þau sem aka allan hringveginn er Suðurland eðlilegur áfangi á leiðinni. Með því að gista hér geturðu sökkt þér ofan í suðurströndina áður en haldið er áfram austur á firði. Með þessari staðsetningu er aksturinn alltaf markviss, alltaf áfram í átt að næsta ævintýri í stað þess að aka sömu leið til baka.
8. Black Sand Hotel er friðsæll griðastaður við suðurströndina
Sæludvöl á Suðurlandi hefst auðvitað á því að finna réttan stað til að slaka á, og Black Sand Hotel stendur undir því. Þetta nútímalega lúxushótel er glæsileg heimahöfn til að skoða suðurströndina.
Hótelið stendur í kyrrð Ölfussins, skammt frá úfnu Norður-Atlantshafinu. Naumhyggjuleg, skandinavísk hönnun þess, með náttúrulegum efnum og lágstemmdum jarðlitum, fellur áreynslulaust að hrjóstrugu íslensku umhverfi. Í herbergjunum 79, hverju og einu hannað af alúð, ramma gólfsíðir gluggar inn víðáttumikið útsýni. Jafnvel þar, í hvíldinni, heldurðu tengslunum við töfra suðurstrandarinnar.
Black Sand Hotel býður ferðalöngum að hægja á sér og er þannig besti gististaðurinn á Suðurlandi fyrir sanna slökun. Frá mjúkum rúmum til framúrskarandi matargerðar á veitingastaðnum ÓMUR er hvert smáatriði hugsað fyrir hvíld og endurnæringu. Með því að velja hótelið sem gististað færðu friðsælan griðastað ásamt greiðum aðgangi að óheftum ævintýrum suðurstrandarinnar.
Suðurland er fullkomin bækistöð fyrir ferðalag um suðurströndina (og lengra)
Hvort sem hugurinn stendur til rólegheita eða hrárra ævintýra tryggir Suðurland praktískt og ljúft ferðalag um suðurströndina. Miðlæg staðsetningin hámarkar tímann þinn og veitir greiðan aðgang að fossum, svörtum sandströndum og fjarlægum jöklum. Með því að velja griðastað eins og Black Sand Hotel tryggirðu þér friðsæla og vel staðsetta bækistöð fyrir hið fullkomna íslenska ferðalag. Fyrir þau sem velta fyrir sér hvar best er að gista við suðurströndina býður Suðurland mestan sveigjanleika, þægindi og aðgang að frægustu perlunum.
Algengar spurningar um Suðurland
Hvað er hægt að gera við suðurströndina?
Suðurströndin er þekkt fyrir dramatískt landslag, þar á meðal fossa, jökla og svartar sandstrendur. Meðal vinsælustu staðanna eru fossarnir Seljalandsfoss og Skógafoss, svarta ströndin í Reynisfjöru, Jökulsárlón og Demantsströndin þar hjá.
Hvort er betra, Norðurland eða Suðurland?
Suðurland hentar oft betur fyrir styttri ferðir eða þau sem eru að koma í fyrsta sinn, með frægum aðalperlum og greiðum aðgangi frá Reykjavík. Norðurland býður færri ferðamenn og annan karakter en krefst yfirleitt lengri ferðatíma.
Hvaða bæir eru við suðurströndina?
Hella og Vík eru meðal helstu bæja beint við suðurstrandarleiðina. Selfoss og Hveragerði eru þægilegar bækistöðvar aðeins ofar í landi.
Er suðurströndin þess virði?
Já, suðurströndin er eitt gjöfulasta svæði landsins að skoða. Samspil fossa, jökla, eldbrunnins landslags og strandarinnar er aðgengilegt og ótrúlega fjölbreytt.
Hvort er betra, Gullni hringurinn eða hringvegurinn?
Gullni hringurinn er tilvalinn ef tíminn er naumur, enda má fara hann á einum degi. Hringvegurinn hentar best fyrir lengri ferðir og gerir þér kleift að skoða allt landið.
Hversu lengi á að dvelja á Suðurlandi?
Gerðu ráð fyrir að minnsta kosti þremur til fjórum dögum á Suðurlandi. Þá nærðu að sjá það helsta, þar á meðal Gullna hringinn og aðalperlur suðurstrandarinnar.